Febrúar
FAS_fotbolti
FAS_fotbolti
Ásta Steinunn, Haukur, Jóhann Bergur og Ragnar Ingi FAS meistarar í fótbolta (Mynd FAS)

21.02.2008 Febrúar

FAS meistarar í fótbolta

Í morgun fór fram fótboltamót í FAS en það er einn liður í opinni viku. Margir þekktir kappar mættu og sýndu hreint ótrúleg tilþrif á vellinum. En það mættu líka nokkrir sem eru þekktari fyrir annað en tuðruspark. Öll liðin þurftu að keppa innbyrðis og stóð hver leikur yfir í 12 mínútur eða sex mínútur á hálfleik. Í leikslok voru það þau Ásta Steinunn, Haukur, Jóhann Bergur og Ragnar Ingi sem stóðu uppi sem sigurvegarar og hljóta þau sæmdarheitið FAS meistarar í fótbolta. Þau fá einnig verðlaunapeninga fyrir frammistöðuna.

Nokkrar myndir frá fótboltamótinu í morgun eru hér

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica