Febrúar
Dr._John_Hull
Dr._John_Hull
Dr. John Hull

21.02.2008 Febrúar

Nýsköpun í ferðaþjónustu: Hagnýt dæmi frá jaðarsvæðum

Mánudaginn 25. febrúar n.k. flytur John S. Hull, doktor í ferðamálafræði, fyrirlestur á vegum Háskólasetursin á Hornafirði og Ferðamálaseturs Íslands um nýsköpun í ferðaþjónustu á jaðarsvæðum. Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Nýheimum og hefst kl. 17:00. Að erindinu loknu verða almennar umræður um efni þess þar sem Dr. Hull mun svara fyrirspurnum viðstaddra. John Hull nam upphaflega umhverfis- og skipulagsfræði en snéri sér síðan að ferðamálum og gerði doktorsrannsókn um sjálfbærni ferðaþjónustu á norðurslóðum sem hann lauk árið 1998. John hefur síðan unnið að fjölda verkefna í heimalandi sínu Kanada (einkum í Nýfundnalandi, Labrador og Québec), í Mið-Austurlöndum og í Afríku. Hann hefur einnig verið þátttakandi eða ráðgjafa í nokkrum norrænum verkefnum sem Íslendingar hafa átt aðild að og þannig öðlast góða þekkingu á ferðaþjónustumálum hérlendis.

Sérsvið hans eru sjálfbær ferðaþjónusta, náttúrutengd ferðaþjónusta og ævintýraferðamennska. John er dósent við tækniháskólann í Auckland á Nýja Sjálandi og aðstoðarforstöðumaður Ferðamálaseturs Nýja Sjálands. Hann er jafnframt annar stofnenda ráðgjafafyrirtækisins Intervale Associates (www.intervale.ca) sem hefur höfuðstöðvar sínar í Kanada. John er um þessar mundir gestaprófessor við Ferðamálasetur Íslands (www.fmsi.is) á Akureyri þar sem hann vinnur m.a. að verkefni um skipulag og stefnumótun ferðaþjónustu í Norður-Þingeyjarsýslu.

Fyrirlestur Johns Hulls verður fluttur á ensku og nefnist "Tourism Innovation: Applications from the Peripheral Destinations" eða "Nýsköpun í ferðaþjónustu: Hagnýt dæmi frá jaðarsvæðum".

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica