Febrúar
Axarvegur
Axarvegur
Axarvegur

20.02.2008 Febrúar

Vegagerðinni send umsögn vegna heilsársvegar um Öxi

Bæjarstjóri Hornafjarðar fyrir hönd sveitarfélagsins hefur sent Vegagerðinni umsögn um heilsársveg um Öxi en í því bréfi kemur fram eftirfarandi 1. Umhverfi og náttúra framkvæmdasvæðis: Undirritaður telur að nýtt vegstæði hafi lítil sem engin áhrif á svæðið, hvorki sjónrænt né vegna landslagsáhrifa og lífríkis. Núverandi vegstæði heldur sig að mestu og áhrifin verða því minniháttar. Nú þegar er mikil umferð um Öxi og því mikilvægt að tryggja sem mest öryggi þeirra sem leið eiga þar um. Beitilönd verða ekki fyrir áhrifum enda liggur leiðin að stærstum hluta um urðir og ógróin lönd. Framkvæmdin mun því að mati undirritaðs ekki hafa nein áhrif á dýralíf á svæðinu og eða raska öðrum náttúrulegum gæðum þess.

2. Vegstytting
Nýr og betri Axarvegur tryggir samgöngur á milli suðausturlands og Fljótsdalshéraðs best. Í gegnum tíðina hafa íbúar á Suðausturlandi átt mikil samskipti við íbúa á Austurlandi, t.d. í æskulýðs- og tómstundastarfi, stjórnsýslu og þjónustu. Á síðari árum hefur ferðamennska aukist verulega. Vegstytting um Öxi styttir leið ferðamanna frá Norrænu til suðausturlands allmikið og eykur öryggi þeirra á ferð um Ísland. Ljóst er að nýr og öruggur vegur milli Skriðdals og Berufjarðar eins og um ræðir í fyrirliggjandi matsáætlun er því mikilvægur hlekkur í að tryggja greiðar samgöngur á milli þessara landshluta.

3. Öryggi vegfarenda
Með nýju vegstæði um Öxi verður öryggi vegfarenda tryggt með sama hætti og best gerist, þar sem veghalli, breidd og uppbygging hins nýja vegar verður samkvæmt þeim stöðlum sem samgönguyfirvöld hafa sett. Núverandi vegstæði er með öllu óviðunandi varðandi öryggi vegfarenda.

5. Umferðarþungi
Ljóst má vera að megin þungi umferðar milli Mið- og Suðausturlands liggur um Öxi, þegar vegurinn er vel fær. Þar af leiðandi er gríðarlega mikilvægt og þjóðhagslega hagkvæmt að áform um nýjan veg um Öxi gangi eftir.

Undirritaður fagnar þessari framkvæmd eins og hún liggur fyrir í öllum atriðum, enda kemur hún til með að stytta vegalengdir og auka öryggi þeirra sem ferðast á milli Suðausturlands, Fljótsdalshéraðs og Norðurlands.


F. h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica