Febrúar
Færarúllur í öndvegi
Við höfnina
Séð frá smábátahöfninni (úr myndasafni)

20.02.2008 Febrúar

Mokafli hjá línubátum

Mokafli er hjá línubátum sem róa frá Hornafirði afli 5-10 tonn í róðri. Unnsteinn Þráinsson á línubátnum Sigga Bessa segir stutt að fara á veiðisvæðið það sé hér rétt fyrir utan. Mest af aflanum er stór og góð ýsa en sáralítið sést af þorski og er það vissulega áhyggjuefni, þó lítið megi veiða af honum. Ýsan fer að mestu á fiskmarkað. Unnsteinn segir að gott verð hafi fengist fyrir ýsuna í vetur, verðið á henni ræðst mikið af veðráttunni og hversu oft gefur á sjó það er fljótt að hækka þegar brælurnar koma og það hefur ekki verið neinn skortur á þeim í vetur. Það sem við veiðum af þorski fer til vinnslu í Bestfiski.

Nýr línubátur, Ragnar SF550 var sjósettur um helgina og er væntanlegur til Hornafjarðar í vikunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica