Febrúar
Loðnan farin að ganga á grunnið
Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá allgóðan afla. Hafrannsóknaskip er komið á svæðið og eru vonir bundnar við að fiskifræðingum takist að mæla stofninn á næstu dögum, að því er fram kemur á Visir.is
Þar segir ennfremur að nokkur skip séu nú að veiðum við Stokksnes, rétt austan við Höfn í Hornafirði, og sé hrognafyllingin orðin svo góð, að loðnan henti til frystingar á Japansmarkað.




Skrifa athugasemd