Fóður og fjör á Hótel Höfn
Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð sem lífga mun upp á skammdegið. Hótel Höfn mun að sjálfsögðu taka þátt í fjörinu og bjóða upp á sérstakan matseðil næstu helgi.
Gert er ráð fyrir að alls 11 veitingastaðir um allt land muni taka þátt í hátíðinni en hún verður haldin í samstarfi við Flugfélag Íslands og útflutningaráð. Sótt hefur verið um styrki til sjávarútvegs-, landbúnaðar og iðnaðarráðuneytisins auk vaxtarsamninga á viðkomandi svæðum.





Skrifa athugasemd