Febrúar
Tveir nýir snjósleðar
Tveir nýir snjósleðar
Jónas Friðriksson formaður njörgunarsveitarinnar og Haukur Sveinbjörnsson forstjóri Olís/Erlingsen á Höfn takast í hendur og í bakgrunneru Ingólfur Einarsson og Þórarinn Birgirsson.

16.02.2008 Febrúar

Björgunarfélagið fær tvo nýja snjósleða

Björgunarfélag Hornafjarðar hefur keypt 2 nýja snjósleða af gerðinni Lynx 800 X strim 150 hestöfl. Sleðarnir eru vel búnir björgunartækjum ss. VHS talstöð, GPS tæki og nauðsynlegum sjúkrabúnaði. Haukur Sveinbjörnsson umboðsmaður Ellingsen á Höfn afhenti Björgunarsveitinni sleðana í dag,föstudag. Við vorum að endurnýja tvo sleða af fjórum sem sveitin á segir Jónas Friðriksson formaður Björgunarfélagsins, þetta eru nettari, léttari og kraftmeiri tæki en þeir gömlu. Við fengum mjög góða fyrirgreiðslu og góðan afslátt hjá umboðsaðilanum sem er Ellingsen og einnig að fá sleðana afhenta hér sparaði okkur líka útgjöld. Björgunarsveitin er vel búin tækjum og á auk þessara nýju sleða 2 stóra snjósleða og 3 bíla sem allt eru nýleg tæki.

Við þurfum öflugan og traustan búnað á okkar svæði og eins til að geta farið um og sinnt leit á Vatnajökulssvæðinu segir Jónas, ferðum fólks um þetta svæði hefur fjölgað ört og verður enn meira þegar Vatnajökulsþjóðgarður verður að veruleika. Ekki hefur verið rætt um samstarf eða annað í sambandi við björgunaraðgerðir í þjóðgarðinum en ég á von á að það verði eitthvað samstarf þegar þar að kemur og við erum kannski líka að undirbúa okkur með það í huga. Við teljum að þegar komi til leitar á jöklinum þurfi 4 vel búna snjósleða og nú eru þeir til staðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica