Starfsmenn og heimilisfólk á Hjúkrunardeild Skjólgarðs héldu sitt Þorrablót í dag
Hefðbundinn Þorramatur var á borðum í hádeginu og kl. 15 var skemmtidagskrá. Þorbjörg Helgadóttir bað Hrein Eiríksson að sjá um að kynningu á skemmtiatriðum og einnig las hann stutta gamansögu, kvennakórinn söng nokkur lög , Guðbjartur Össurarson las frumsamin ljóð sem vöktu mikla ánægju viðstaddra enda maðurinn sérstaklega hagmæltur. Séra Sigurður Kr. Sigurðsson stjórnaði almennum söng við góðar undirtektir viðstaddra og undirleik annaðist Kristín kona hans.
Síðasta atriðið var harmonikkuleikur tvíburanna Andra og Braga Þorsteinssona og er ekki vafi á að þeir hafa náð til allra sem þarna voru bæði með leik sínum og ekki síður sinni ljúfmannlegu framkomu.





Skrifa athugasemd