Þetta verður ekki bara stór þjóðgarður heldur líka einstakur
Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir kom í heimsókn til Hornafjarðar í dag ásamt Önnu Kr. Ólafsdóttur aðstoðarmanni ráðherra sem jafnframt er formaður yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Fréttamaður vefsins hafði tal af ráðherra þar sem hann var að skoða Jöklasýninguna ásamt aðstoðarmanni sínum og bæjarstjórnarmönnum, og spurði hvað umhverfisráðherra finnist um staðinn og það sem verið er að gera hér. Mér líst vel á það sem ég hef skoðað hér, segir ráðherra, ég er búin að funda með bæjarstjórn, fara í Nýheima og skoða Jöklasýninguna. Við höfum rætt mikið um Vatnajökulsþjóðgarð og ég hef líst því yfir við bæjarstjórn að ég er mjög ánægð með það hvernig Hornfirðingar hafa tekið á uppbyggingu þjóðgarðsins og mér finnst andinn hér mjög jákvæður.
Það er gaman að hér sér fólk tækifæri í því að stofna nýjan þjóðgarð sem verður stærsti þjóðgarður í Evrópu og býður uppá gríðarleg tækifæri í ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu tengdri þjóðgarðinum. Mér finnst vel að því staðið hér, þetta er mjög stórt verkefni og það mun taka tíma að gera þjóðgarðinn þannig úr garði að hann standi undir nafni en það byrjar mjög vel.
Ráðherra segir það mjög gaman að hafa fengið tækifæri til þess að koma hingað og eyða svolitlum tíma með bæjarfulltrúum og hitta fólk sem er að störfum hér í bænum og geta svona í rólegheitum rætt málin og bætir við ,, það er mjög gott fyrir mig´´.
Vatnajökulsþjóðgarður verður væntanlega formlega stofnaður í apríl eða maí n.k. þá gerist það þannig að undirrituð verður reglugerð svona formlega frágengið og síðan verður afhjúpað lógó-merki garðsins. Þá er farin af stað arkitektasamkeppni fyrir gestastofurnar fjórar sem reistar verðar í þjóðgarðinum og verður byrjað á Skriðuklaustri en líklega eru 2-3 ár í að gestastofa verði reist hér.
Það má segja að þetta uppbyggingaskeið þ.e. tíminn sem fer í að stofna þjóðgarðinn og sjá til að þessir grunnþættir séu til staðar, það er svona fjögurra til fimm ára ferli segir ráðherra, þetta er mjög viðamikið verkefni og það þarf vel að vanda til þess sem lengi á að standa. Á þessu stóra svæði verður mjög fjölbreitt starfsemi, þar er hægt að stunda landbúnað, allar gerðir af útivist , jöklaferðum, og gönguferðir. Ég er þeirrar skoðunar að Vatnajökulsþjóðgarður verði einstakur það er ekkert svæði sem ég hef heyrt af eða þekki til í heiminum sem líkist þessu svæði eða svæðinu hér í kring. Við verðum að sjá til þess að fólk fái að kynnast þessum einstaka stað og það er auðvitað það sem við erum selja ferðamönnum
Þetta verður ekki bara stór þjóðgarður heldur verður hann líka einstakur, sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra í lokin.





Skrifa athugasemd