Norðurljósablús 29. febrúar til 2. mars næstkomandi
Þrjú erlend og sex íslensk blúsbönd koma fram á Blúshátíðinni Norðurljósablús 2008 verður haldin í þriðja sinn hér dagana 29. febrúar til 2. mars næstkomandi. Að þessu sinni var ákveðið að gefa ungu íslenski blústónlistarfólki tækifæri til að koma fram og jafnframt að kynna tónlistarmenn frá norðurlöndunum fyrir landsmönnum.
Þrjár sveitir koma að utan í ár. Øernes blues band frá Danmörku, Street Cowboys frá Smálöndunum í Svíþjóð og síðast en ekki síst Emil & the Ecstatics frá Svíþjóð. Þeir síðastnefndu voru aðal gestir Norðurljósablúss 2006 og gerðu gríðarlega lukku. Þá ættu Hornfirðingar að kannast við svipinn á trommuleikaranum í sænsku sveitinni Higgins and the Lowdowns því það er enginn annar en Ólafur Karl Karlsson frá Móhóli.
Íslensku sveitirnar eru Grasrætur frá Hafnarfirði, Johnny and the rest frá Reykjavík, Blús-brot frá Stöðvarfirði og Vax frá Egilsstöðum.
Tvö hornfirsk bönd leika á hátíðinni, Mæðusveitin Sigurbjörn og Hulda Rós og rökkurtríóið frá Hornafirði. Að sjálfsögðu verður blúsdjamm þar sem allir geta fengið að taka grípa í hljóðfæri eða syngja og oft hefur myndast einstök djamm stemmning á Norðurljósablús.
Hornfirska skemmtifélagið hefur veg og vanda að Norðurljósablús í samstarfi við veitingamenn og ferðaþjónustufólk á Hornafirði. Félagið fékk Menningarverðlaun Hornafjarðar á síðasta ári og hefur notið styrkja frá Menningarráði Austurlands. Önnur verkefni Skemmtifélagsins eru að standa fyrir tónlistardagskrá á haustmánuðum ár hvert og þar eru það hornfirskir skemmtikraftar sem stíga á stokk.
Dagskrá Norðurljósablús 2008
www.skemmtifelag.is





Skrifa athugasemd