Febrúar
Ritgerdarsamkeppni_1
Ritgerdarsamkeppni_1
Þorgerður Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra afhenti verðlaunin. Mynd: Austurglugginn/Gunnar

13.02.2008 Febrúar

Nemandi í Grunnskólanum í Hofgarði hlaut þriðju verðlaun í ritgerðarsamkeppni

Lydía Angelíka Guðmundsdóttir í Grunnskólanum Hofgarði hlaut þriðju verðlaun í ritgerðarsamkeppni sem samtökin Vinir landsbyggðarinnar standa fyrir. Samkeppnin er meðal valinna skóla ár hvert og hefur það að markmiði að hvetja unglinga til að leggja fram hugmyndir um hvernig samfélagi þau vilja búa í og hvað þau geta gert fyrir heimabyggðina. Verðlaunin voru afhent af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í Norræna húsinu s.l. mánudag. Tveir skólar úr hverjum landshluta taka þátt í keppninni. Um 400 ritgerðir voru skrifaðar af nemendum í 8.-10. bekk en 21 var valin fyrir dómnefnd. Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni eru hluti af samtökunum Landsbyggðin lifir.

1. verðlaun hlaut Aron Daði Þórisson í Grunnskólanum á Djúpavogi, 2. verðlaun fékk Helga Hansdóttir í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði. Í samtali við Auturgluggann sagði Aron "Ég held þetta sé byrjunin á einhverju góðu," en ritgerð Arons Daða, sem birt í blaðinu Austurglugganum og heitir ritgerð "Nýr og betri Djúpavogur." Í rökstuðningi dómnefndar segir að Aroni takist að koma frá sér sérlega áhugaverðum hugmyndum á lifandi, skýran og persónulegan hátt. Lokaorð ritgerðarinnar voru prentuð á veggspjald sem hékk uppi í dag, en þau eru: "Ef þú ert ekki partur af lausninni þá ertu partur af vandamálinu."

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica