Slökkvilið veitti viðurkenningu og verðlaun fyrir þátttöku í eldvarnagetraun
Í morgun fékk Slökkvilið Hornafjarðar heimsókn frá átta ára krökkum úr Nesjaskóla en þau komu þangað í fylgd með kennurum sínum. Tilefni heimsóknarinnar var að taka á móti verðlaunum fyrir þátttöku þeirra í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Nöfn 34 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Eitt nafn kom úr þessum potti og er hann nemandi í Nesjaskóla og heitir Ágúst Máni Aðalsteinsson, í vinning hlaut hann viðurkenningarskjal Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með árituðu nafni, reyksskynjara, forvarnablað og SONY MP3 spilara. Slökkviliðsmenn óskuðu Ágústi til hamingju, og hans bekkjarfélögum fyrir samviskusamlega úrvinnslu á þessari getraun.
Það er samdóma álit þeirra sem stóðu að verkefninu að það hafi tekist vel og forvarnagildi þess sé ótvírædd. Jákvæð umfjöllun um forvarnir í brunamálum er afar mikilvægur þáttur í bættum eldvörnum.
- Borgþór Freysteinsson
Eldvarnaeftirlit.





Skrifa athugasemd