Febrúar
Fiðlarinn á þakinu
Fiðlarinn á þakinu
Fiðlarinn á þakinu (úr myndasafni)

13.02.2008 Febrúar

Öflug leikstarfsemi á Hornafirði

Þegar vefurinn hafði samband við Magnús J. Magnússon fyrir helgina og spurði hann frétta af leiklistarlífinu á staðnum og hvaða stórsýning yrði fyrir valinu sagði hann þetta allt koma í ljós eftir helgina. Nú er komið í ljós að fyrir valinu varð Rocky Horror Picture Show sem Jón Ingi Hákonarson leikstýrir og verður nánar sagt frá því hér á vefnum síðar. Leikstarfsemi hefur löngum verið öflug á Hornafirði og einkum hjá unglingum eftir að kennarinn Magnús J. Magnússon flutti til Hornafjarðar 1993. Magnús stofnaði þá leikhópinn Lopa með unglingunum og á þessum 15 árum hafa frumsýningar hjá leikhópnum Lopa verið 20 þar af hefur Magnús samið handrit fyrir 15 þeirra sýninga.

Þegar Magnús var spurður hvernig þetta væri hægt og það allt vinsæl leikrit svaraði hann: Þetta er bara þannig að þegar maður hefur fengið þennan hæfileika þá finnst mér að mér beri skylda til að nýta hann öðrum til hagsbóta. Maður verður auðvitað að hafa ákveðið hugrekki þegar maður stendur frammi fyrir því að setja upp leikrit fyrir yfir 50 krakka en lögmálið er að það sé engum vísað frá og allir sem vilja fái hlutverk.
Fjölmennasta sýningin var Svipmyndir en þá mættu 57 krakkar þegar boðað var til fundar og þá samdi ég handrit fyrir 57 leikendur og þetta gekk allt ljómandi vel eins var fyrir aðra sýningu þegar mættu 27 stelpur og 3 strákar þá var bara að semja handrit fyrir þann hóp.
Það eru svona 20-40 krakkar sem á hverju leikári taka þátt í sýningum hér.
Stefnt verður á að Lopi frumsýni leikrit í vor og að leikhópurinn sýni það á fleiri stöðum.

Á síðasta vetri var söngleikurinn Fiðlarinn á Þakinu sýndur í Mánagarði við miklar vinsældir einnig voru frumsýnd leikritin Trúðaskólinn hjá leikfélaginu og framhaldsskólanum, Umferðarmiðstöðin hjá Lopa og undir vorið sýndi Lopi leikritið Sumarævintýri.
Í vetur fyrir jólin sýndi Lopi leikritið Jólagjafalistann. Auk allra þessara sýninga hefur Magnús sett upp 4 sýningar hjá Leikfélagi Hornafjarðar og 3 með Leikfélaginu Mána í Nesjum. Einnig hefur hann sett upp 10 sýningar í skólum víðsvegar um landið og þar sem leikrit hafa ekki verið fyrir hendi fær hann nafnalista yfir þá sem ætla að taka þátt í sýningum, semur handritið og sendir það, skreppur svo um tvær helgar á staðinn og leikritið er sviðsett og sýnt, svo einfalt er það, eins og Magnús segir .

Magnús segir að flestir sem taka þátt í stóru sýningunum hér séu ,,Lopa-krakkar", krakkar sem eru búnir að taka þátt í 5-6 frumsýningum og fara svo inn í leikfélagið, þau kunna að leika og hafa þessa sviðsvitund og það öryggi sem þarf.
Leikhópurinn Lopi hefur vakið mikla athygli fyrir sína starfsemi og m.a. var fjallað um leikhópinn í fræðsludeild Þjóðleikhússins þar sem mönnum þykir þetta unglingaleikhús stórmerkilegt.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica