Febrúar
Höfn
Höfn
Séð frá Hótel Höfn á góðum sumardegi (úr myndasafni)

12.02.2008 Febrúar

Sveitarfélagið Hornafjörður með hæstu einkunargjöf af landsbyggðarsveitarfélögum

Samkvæmt úttekt Vísbendingar vikurits um viðskipti og efnahagsmál, á fjárhagslegum mælikvörðum fær Sveitarfélagið Hornafjörður hæstu einkunn af landsbyggðarsveitarfélögum með einkunnagjöfina 6,8 og er í fjórða sæti ef með eru talin yfir sveitarfélögin Garðabær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær. Árið 2006 var Sveitarfélagið Hornafjörður í 10 sæti en hefur nú hækkað sig upp í 4 sætið. Til hamingju Hornafjörður! Í frétt frá Vísbendingu kemur áfram að þrjú sveitarfélög eru með einkunn yfir 7,0. Það eru annars vegar Garðabær með meðaleinkunnina 8,3, Seltjarnarnes með einkunnina 7,3 og Mosfellsbær með 7,0. Efstu tvö sveitarfélögin eru þau sömu og í fyrra. Seltjarnarnes lækkar í einkunn vegna hás veltufjárhlutfalls og þess hve rekstrarafkoman er hátt hlutfall af tekjum. Ef reiknað er með því að þetta sé tímabundið ástand má segja að staða Seltjarnarness sé afar góð.

Hvað er það sem gerir þessi bæjarfélög góð? Útsvarsprósentan er lægri þar en annars staðar. Ekki munar það mjög miklu en hjá fjölskyldu með 5 milljón króna árstekjur var útsvarið 34 þúsund krónum lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík. Þetta jafngildir um það bil 1% hærri ráðstöfunartekjum. Garðabær fær góða einkunn á öllum sviðum nema rekstarafkoma hefði mátt vera öllu betri. Skuldir sem hlutfall af tekjum eru 97% í Garðabæ og aðeins 63% á Seltjarnarnesi.

Athygli vekur að höfuðborgin fær 3,4 og er lendir í 26. sæti, hrapar um 11 sæti. Auðvitað má ekki taka þetta sem algild vísindi og einkunn af þessu tagi er fyrst og fremst vísbending um stöðuna. Fjarðabyggð fær ekki háa einkunn en hækkar þó mikið í töflunni. Þar eru flest hlutföll óeðlileg enda er sveitarfélagið í mikilli uppbyggingu. Einkunnagjöfin bendir til þess að bæjarfélagið sé á réttri leið. Álftanes og Stykkishólmur lækka langmest. Einnig vekur slök staða Hafnarfjarðar á listanum athygli. Bæði Ísafjarðarbær og Bolungarvík eru með neikvætt eigið fé sem hlýtur að vera mikið áhyggjuefni.

heimur.is


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica