Febrúar
Ari Þorsteinsson
Ari Þorsteinsson
Ari Þorsteinsson framkvæmdarstjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands.

12.02.2008 Febrúar

Framtíð nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs á Suðausturlandi

Á fundi bæjarráðs í gær kom fram hjá Hjalta Þór Vignissyni bæjarstjóra að verið er að skoða þann möguleika að Nýsköpunarmiðstöð Íslands taki yfir starfsemi Frumkvöðlaseturs Austurlands. Á fundinum lagði Hjalti Þór fram minnispunkta um málið í framhaldi af komu forstjóra og framkvæmdarstjóra Nýsköpunarmiðstöðvarinnar (NMI) til Hafnar í lok janúar og frá heimsókn þeirra Ara Þorsteinssonar framkvæmdarstjóra Frumkvöðlasetursins til NMI í Reykjavík. Í minnispunktunum kemur fram að með mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar var NMI falið að stofna til starfsemi á Höfn í Hornafirði. Fyrir var Frumkvöðlasetur Austurlands með starfsemi og hafði náð mikilsverðum árangri á sínu starfsviðið. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar leiddi til þess að móta þurfti stefnu i nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi í Sveitarfélaginu Hornafirði til framtíðar.

Þorsteinn Ingi Sigfússon og Berglind Hallgrímsdóttir frá NMI heimsóttu Hornafjörð í þessum tilgangi þann 21. janúar 2008. Í tengslum við þá ferð setti Þorsteinn saman minnispunkta þar sem hugmyndir eru settar fram um helstu áherslumál í starfsemi NMI á Hornafirði. Í minnispunktunum kom fram að NMI gæti komið að eflingu atvinnulífs í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs með frumkvöðlastuðningi, klasavirkni og rannsóknarþætti. Þá kom fram að efnislegar námur gætu skapað héraðinu sérstöðu, sérstaklega vatn/ís og berg. Þorsteinn Ingi segir áhugavert að skoða hvort unnt yrði að aldursgreina vatn/ís þannig að hugsanleg átöppun gæti tekið mið af aldri vatnsins og höfðað til sölu á aldursmerktu vatni til ýmissa tækifærisnota. Einnig minnist hann á að lega Hornafjarðar á hinu sérkennilega bergfræðilega landi gæti leitt til útflutnings á bergi eða jarðefni. Þá heimsóttu starfsemi NMI frumkvöðul á staðnum. Þorsteinn telur að eðli starfsins geti skipst í tvo meginstrauma, Impru tengda starfsemi og tækniverkefni. Að endingu kemur fram að NMI sjái mikil tækifæri í starfsemi Frumunnar.

Í kjölfar heimsóknar stjórnenda NMI fór af stað töluverð umræða á Hornafirði um hvernig best væri að ná utan um það verkefni að byggja upp öflugt nýsköpunar- og frumkvöðlastarf á Suðausturlandi til lengri tíma. Þann 8. febrúar funduðu Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar, og Ari Þ. Þorsteinsson, framkv.stjóri Frumunnar og settu niður á blað tillögu um hvernig þessu málum yrði best háttað. Þá tillögðu lögðu þeir fram á fundi með stjórnendum NMI á fundi þann 9. febrúar, þeim Þorsteini Inga, Sigríði Ingvarsdóttur og Karli Friðrikssyni. Á þeim fundi var aftur farið yfir megináherslur í starfi NMI á Hornafirði. Þar ræddi Þorsteinn Ingi um efnislegar auðlindir og óefnislegar auðlindir á Hornafirði og hvaða möguleikar séu að vinna út frá þeim. Rætt var til dæmis um að hluti af efnagreiningum á jarðefnum sem unnið er á vegum NMI geti flust til Hornafjarðar. Meginþungi umræðunnar sneri hins vegar að því að nýta sem best þær auðlindir sem svæðið byggir afkomu sína á. Í því sambandi var rætt um sjávarfang, landbúnað, vatn og grjót. Hin óefnislegu auðlindir felast í hugviti og aukinni þekkingu til að efla matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu ekki síst í tengslum við þjóðgarðinn. Að loknum umræðum urðu fundarmenn ásátt um að byggja á tillögum Ara og Hjalta um framtíð nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs í Sveitarfélaginu Hornafirði sem eru í meginatriðum eftirfarandi:

Markmiðið er að byggja upp öflugt nýsköpunar- og frumkvöðlastarf á Suðausturlandi til lengri tíma með tveimur starfsmönnum. Þau fimm ár sem Frumkvöðlasetrið hefur starfað hefur það unnið sér sess og verið leiðandi í frumkvöðla- og nýsköpunarstarfi á Hornafirði. Fjöldi frumkvöðla hefur unnið að verkefnum sínum í setrinu. Með mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar sl. sumar voru veittir talsverðir fjármunir í að setja á fót starfstöð Nýsköpunarmiðstöðvar á Hornafirði. Starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar og Frumkvöðlaseturs er að mörgu leyti lík og því er gerð tillaga um að sett verði á fót starfstöð Nýsköpunarmiðstöðvar með tveimur starfsmönnum til að byrja með. Hin nýja starfstöð taki einnig yfir hugmyndafræði, verkefni og hlutverk Frumkvöðlaseturs. Hugmyndin er einnig sú að starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar í Reykjavík geti nýtt sér vinnu- og fundaraðstöðu á Hornafirði og einnig að starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar á Hornafirði geti nýtt sér aðstöðu í Reykjavík. Jafnframt geta frumkvöðlar nýtt sér aðstöðuna á báðum stöðum.

Nýsköpunarmiðstöðin verður mikilvægur hluti af samfélaginu í Nýheimum sem þarf að styðja við og þróa enn frekar. Markvisst hefur verið unnið að því á undanförnum árum að efla nýsköpunar- og frumkvöðlastarf, menningarstarfsemi, háskólanám, framhaldskólanám, margvíslegt námskeiðahald og öflugt rannsóknar- og þróunarstarf á háskólastigi. Hlutverk Frumunnar í þessu samfélagi hefur verið að:

  • Að veita frumkvöðlum og fyrirtækjum leiðbeiningar og ráðgjöf og aðstoðar við að koma á samskiptum við sérfræðinga þar sem það á við.
  • Að bjóða upp á skrifstofuaðstöðu fyrir aðila s.s. vísindamenn og námsmenn sem eru að vinna að verkefnum, rannsóknum, athugunum og / eða ráðgjöf
  • Að vera leiðbeinandi varðandi fjármögnun verkefna og viðskiptahugmynda
  • Að veita upplýsingar um lánastofnanir, sjóði og styrki.
  • Að taka að sér að stýra verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
  • Að koma á og viðhalda öflugu tengslaneti og í nánu samstarfi við stofnanir.

Mikilvægt er að vinna að framtíðarfjármögnun fyrir verkefnið. Það verði gert með eftirfarandi hætti: Sveitarfélagið Hornafjörður skuldbindur sig til að leggja verkefninu til 2.000.000. krónur árlega gegn því að Nýsköpunarmiðstöðin sjái um aðstöðu og handleiðslu fyrir frumkvöðla.
Tryggja áframhaldandi stuðning úr ríkissjóði í samræmi við mótvægisaðgerðir sem hljóðuðu upp á 28.000.000 kr. til tveggja ára.
Sækja aukið rekstrarfé til iðnaðarráðuneytis.
Afla fjármuna í gegnum verkefni sem hafa eflst, stækkað og fjölgað á þeim fimm árum sem Frumann hefur verið starfandi. Næstu 3 ár er búið að afla tæpra 42.000.000 króna vegna verkefna. Kostnaður er áætlaður 21.000.000 miljón þannig að verkefnin skapa 21.000.000 miljón í rekstrarfé.
Með þessari fjárveitingu er tryggt að heildarrekstrarfé til þriggja ára er rúmar 55.000.000 kr.


Litið er á það sem næstu skref að:

  • Nýsköpunarmiðstöð íslands setur upp starfstöð í Nýheimum á Hornafirði.
  • Sameiginleg vinna að aðila að tryggja fjármögnun til langs tíma.
  • Nýsköpunarmiðstöð ræður tvo starfsmenn til starfa.
  • Nýsköpunarmiðstöð yfirtekur verkefni og starf Frumunnar.
  • Að halda áfram að vinna að þeim verkefnum sem Fruman sinnir í dag og setja í gang önnur skv. meðfylgjandi verkefnaskjali.


- Tekið saman af Hjalta Þór Vignissyni, þann 8. febrúar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica