Febrúar
Heddi frændi
Heddi frændi
Heddi frændi settur á flot
Mynd 1 af 2
1 2

08.02.2008 Febrúar

Heddi Frændi kominn á flot

Heddi Frændi kominn á flot aftur og kominn á sinn stað við Óslandsbryggjuna. Vignir Júlíusson sagði að vel hefði gengið að ná Hedda upp úr sjónum. Þegar búið var að dæla sjó úr bátnum var tiltölulega auðvelt að koma honum á réttan kjöl með aðstoð frá Birni Lóðs. Ljóst er að Heddi Frændi verður ekki gerður út framar, aftur á móti er óljóst hvernig hægt verður að farga honum. Best væri ef eitthvert sjóminjasafn vildi fá hann því hann á ábyggilega merkilega útgerðarsögu ekki síður en önnur fiskiskip.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica