Búið að panta þrjú leiktæki til notkunar í vaðlaugina
Þó ekki sjáist ennþá mikið af nýju sundlaugarbyggingunni er farið að huga að þeim búnaði sem settur verður þar upp. Búið er að velja og panta þrjú leiktæki til notkunar í vaðlaugina en einhverja mánuði tekur að fá þau á staðinn. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs segir að verið sé að skoða hvernig rennibraut verði fyrir valinu og hversu há og stór hún verði. Nefndin sem sér um íþróttamannvirki á staðnum er sammála um að velja rennibraut sem er sambærileg og er í Kópavogi en sú rennibraut er opin 5,5 m. á hæð og grá að lit.
Nefndin hefur lagt til að rennibrautin verði í öðrum lit en gráum og er það vel þar sem litir hafa mikil áhrif á líðan fólks og grái liturinn er nú ekki sá glaðlegasti í litaflórunni.





Skrifa athugasemd