Febrúar
Hreindýr í Nesjum
Hreindýr í Nesjum
Hreindýr í Nesjum
Mynd 1 af 3
1 2 3

06.02.2008 Febrúar

Hreindýrum fjölgar í Nesjum

Hreindýrahjarðir eru óneytanlega augnayndi og hrífandi að sjá þessi tignarlegu dýr bera sig um og hvað þau eiga létt með að hreifa sig.Undanfarið hefur lítið sést til hreindýra þegar farið er um þjóðveginn í Lóni aðeins smá hópar með 4-8 dýrum einn og einn hópur stærri. Vefurinn hafði samband við Stefán Helgason á Setbergi, sem veit manna mest um hreindýr hér um slóðir, og spurði hann hverju þetta sætti; Hélt hann að ástæðan gæti verið sú að lítið væri fyrir þau að hafa á sléttlendinu núna og eins væri mikil hálka því leituðu dýrin inn til heiðanna. Hreindýrum sem halda sig í Nesjum og á Mýrum hefur fjölgað mikið og taldi Stefán að í Nesjum væru eitthvað á annað hundrað dýr.
Bændur eru ekki alltaf hressir með að hafa stóra hópa á túnum sínum því dýrin eiga það til að ryðja niður girðingum verði þau hrædd eða einhver styggð komi að þeim þá rjúka þau áfram yfir hvað sem fyrir verður og skilja eftir ónýtar girðingar á stórum svæði.

Stefán telur að ástæðan fyrir fjölgun hreindýra hér í sveitunum sé meðal annars vegna virkjanaframkvæmdanna við Kárahnúka og Fljótsdalshéraði einnig að meira er um veiðimenn á þeim slóðum og dýrin flýja þá.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica