Febrúar
Kvennakórinn á landsmóti 2005
Kvennakórinn á landsmóti 2005
Kvennakórinn á landsmóti 2005
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

06.02.2008 Febrúar

Landsmót Kvennakóra á Höfn í apríl

7. Landsmót Kvennakóra verður haldið hér á Hornafirði dagana 25.-27. apríl 2008.

Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið hér á Höfn í apríl n.k. Er það haldið á 3.ára fresti og var síðast í Hafnarfirði. Það er mikill heiður fyrir Kvennakórinn að fá að halda næsta mót og ætlum við að kappkosta að mótið verði sem glæsilegast Einnig ætlum við að leggja mikla áherslu á að kynna sýsluna og bæinn okkar sem best og veita þeim rúmlega 300 konum og stjórnendum þeirra sem hingað koma ógleymanlega heimsókn. Og þá um leið að þetta landsmót verði samfélaginu hér öllu lyftistöng en tryggt verður að dagskráin gefi svigrúm til annars en að syngja. Þessa helgi verða öll söfn opin og frítt inn, eins verður frítt í sund fyrir mótsgesti og verður sett upp atvinnu/mannlífssýning á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum. Þetta mót er stærðar lyftistöng fyrir samfélagið okkar og má búast við því að gestir okkar setji svip á bæinn þessa helgi.

Undirbúningsvinna hefur nú staðið frá síðasta landsmóti og nú fer þetta að skella á. Öll gistirými á Höfn og nágrenni eru uppbókuð, alveg vestur að Smyrlabjörgum. Þóra Marteinsdóttir, tónskáld, samdi sérstakt landsmótslag við texta Guðbjarts Össurarsonar sem verður frumflutt á mótinu. Endar mótið með stórtónleikum í íþróttahúsinu á Höfn, þar sem allir kórarnir syngja saman við undirleik stórsveitar Jóhanns Móravek, en einnig verða tónleikar á laugardeginum.
Við viljum kynna mótið sem allra best fyrir heimamönnum, svo við getum öll staðið saman að frábærri helgi og haldið glæsilegasta landsmót sem sögur fara af!

Landsmótsnefnd skipa þær Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir, Lúcía Óskarsdóttir og Erna Gísladóttir. Hafa þær unnið sleitulaust að undirbúningi þessa móts og unnið frábært starf.

Þeim sem hafa einverjar spurningar er velkomið að hafa samband við þær í síma 866 8030 eða lucia@hornafjordur.is eða á kvennakor@hornafjordur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica