Febrúar
Íslandsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna árið 2008
Mótið verður föstudaginn 8. febrúar n.k. kl 20:00 í Skaftfellingabúð Laugarvegi 178 Reykjavík. Þriggjamanna úrslitaumferð verður að venju í uppafi þorrablóts Hornfirðinga daginn eftir. Á mótinu í fyrra sigraði Sigurpáll Ingibergsson (Palli á Fiskhól) og til úrslita spiluðu sömuleiðis Sigríður Guðmundsdóttir (kona Gunnars Bernhards frá Þinganesi) og Halldór Tryggvason. Góð þátttaka hefur verið undanfarin ár og keppnin spennandi. Þó að einhverjir geti ekki leynt keppnisskapinu hafa þátttakendur átt ánægjulegar samverustundir þar sem góðir kunningjar hittast og spjalla saman.
Hér er hægt að sjá spilareglurnar sem það vilja.





Skrifa athugasemd