Febrúar
Hugrún Harpa Reynisdóttir
Hugrún Harpa Reynisdóttir
Hugrún Harpa Reynisdóttir

05.02.2008 Febrúar

Þekkingarnetið bætir við starfsmanni á Höfn

Í janúar á þessu ári hefur Þekkingarnetið rekið starfsstöð á Hornafirði í eitt ár og er óhætt að segja að Hornfirðingar hafi tekið starfseminni og því sem boðið hefur verið uppá mjög vel. Starfsemin hefur vaxið hratt og nú hefur verið ráðinn annar starfsmaður, Hugrún Harpa Reynisdóttir. Hugrún Harpa er Mýrarmaður, dóttir Reynis Sigursteinssonar og Katrínar Lilju Haraldsdóttur. Hugrún Harpa er nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þekkingarnetið fer af stað með starfsemi sína af fítonskrafti nú eftir þorrablótið, sagði Ragnhildur verkefnisstjóri í viðtali við hornafjörð.is í dag. Nú hefur námskeiðsbæklingur verið borinn í hvert hús í Sveitarfélaginu og eins og sjá má þar verða fjölbreytt námskeið í boði á vorönninni.

Nýlokið er útskrift 15 starfsmanna HSSA af Fagnámskeiði og námskeið fyrir fólk með dyslexíu eða lesblindu er farið af stað. Í fyrra kenndi Bryndís Víglundsdóttir ensku fyrir byrjendur og lengra komna við góðan orðstír og er hún tilbúin að snúa aftur til að kenna Hornfirðingum ensku og er því þeim sem hafa áhuga á slíku námskeiði bent á að hafa samband við Þekkingarnetið. Heiðar Sigurðsson ætlar að kenna öll almenn tölvunámskeið og er hann farinn af stað með tvö byrjendanámskeið. Nýlega hófst samvinna við Hraðlestrarskólann og eru skráningar hafnar á námskeið hans sjá nánar www.h.is og í bæklingnum má sjá mörg fleiri áhugaverð námskeið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica