Bæjaráð samþykkti tillögu atvinnumálanefndar vegna skerðingar á aflaheimildum þorsks
Bæjaráð samþykkti tillögu atvinnumálanefndar um úthlutun 8,8 m.kr. framlagi frá félagsmálaráðuneytinu vegna skerðingar á aflaheimildum þorsks. Á fundi atvinnumálanefndar 30. janúar s.l. samþykkti eftirfarandi tillögur á fundi sínum: 1.Að lagðar verði allt að 2 milljónir króna til að undirbúa vinnslu og útflutning á vatni í héraðinu. Frumkvöðlasetur Austurlands hefur unnið verkefna- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem gerir ráð fyrir kostnaði upp á 2 miljónir. Atvinnumálanefnd telur rétt að leitað verði til setursins að vinna verkefnið en leggur jafnframt áherslu á að aðrir hagsmunaaðilar leggi fram fjármuni í verkefnið.
2. Að lögð verði allt að 1 milljón króna í atvinnuuppbyggingu í tengslum við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Að mati atvinnumálanefndar er þessi vinna á frumstigi og telur nefndin mikilvægt að gerð verði nákvæm verk- og kostnaðaráætlun. Þá leggur nefndin til að leitað verði til Háskólasetursins á Hornafirði, Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. og Ríki Vatnajökuls ehf. til að finna verkefninu réttan farveg.
3. Að lagðar verði 5,8 miljónir króna í verkefni sem tengjast matvælaframleiðslu. Atvinnumálanefnd leggur að þessu sinni áherslu á að verkefni á sviði sjávarútvegs verði styrkt sérstaklega. Matís ohf. og Frumkvöðlasetur Austurlands ehf. hafa verið í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki um slík verkefni og leggur Atvinnumálanefnd til að þessir aðilar verði fengnir til að vinna þetta verkefni.
Tillögur atvinnumálanefndar um ráðstöfun á úthlutuðu fé félagsmálaráðuneytisins vegna mótvægisaðgerða voru samþykktar.




Skrifa athugasemd