Febrúar
Heddi frændi sokkinn
Heddi frændi sokkinn_IMG_9422
Heddi frændi sokkinn
Mynd 1 af 2
1 2

05.02.2008 Febrúar

Heddi frændi sokkinn við bryggjuna

Það hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa tekið Óslandsrúntinn í dag að við bryggjuna fyrir framan Bestfisk er bátur sem hefur sokkið þar við bryggjuna. Um er að ræða bátinn Hedda frænda sem er 60 tonna eikarbátur smíðaður 1972. Ekki er vitað hvers vegna hann sökk en talið er að mögulegt að hann hafi frostsprungið og því komist vatn í hann. Báturinn er í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar og hefur verið bundinn við bryggju frá því Sveitarfélagið leysti hann til sín á uppboði hjá Héraðsdómi Norðurlands upp í skuld. Báturinn hefur verið í umsjón starfsmanna Hornafjarðarhafnar en það hefur staðið til að rífa hann. Þess ber að geta að ekki er lengur hægt að brenna báta né sigla þeim á haf út og sökkva.

Líklegast verður dælt úr bátnum og hann settur á flot svo hægt sé að koma honum á stað þar sem hægt verður að rífa hann niður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica