Febrúar
Þorraferð 2008 4x4 Hornafjarðardeild
Þorraferð 2008 4x4 Hornafjarðardeild
Ferð 4x4 Snæefell-Askja 11.-14.januar 2008
Mynd 7 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

01.02.2008 Febrúar

Þorrablótsferð 4x4 í Hólaskjól

Þorrablót Hornafjarðardeildar 4x4 klúbbsins verður haldin í Hólaskjóli á Fjallabaksleið um helgina 15-17 febrúar. Farið verður í Hólaskjól á föstudagskvöld og er reiknað með að leiðin inn hálendið sé fær öllum jeppum sem á annað borð er hægt að keyra í snjó og þar er gisti pláss fyrir fjölda fólks. Á laugardaginn er ætlunin að skoða sig um þarna á hálendinu og þeir sem vilja njóta útivistarinnar sem best geta haft með sér sleða eða skíði, alveg kjörið fyrir börnin og unglingana. Á laugardagskvöld er sameiginlegur kvöldverður, þorramatur útbúinn af einhverjum matreiðslumeistaranum hér á Höfn. Eins og á öllum góðum þorrablótum er skemmtinefnd sem sér um skemmtidagskrána og þau sem að þessu sinni bera ábyrgð á henni eru Jón Bragason, Magnhildur Pétursdóttir, Unnsteinn Þráinsson og Sigurður Guðmundsson. Á sunnudag verður haldið heim. Þetta er fjölskylduferð og því tilvalið að taka börnin með .

Þorkell Kolbeins formaður klúbbsins segir að allar þorrablótsferðirnar til þessa hafi verið farnar í Snæfell en nú hafi verið ákveðið að breyta til og halda í aðra átt. Snæfells-ferðin í fyrra gekk ekki eins og áformað var því veður var hið versta og komust ekki allir í Snæfell og var þorrablótið haldið á Skipalæk.

Þorkell segir að klúbburinn sé búinn að fara eina ferð á þessu ári, farið var í Snæfell og Öskju.
Fimmtán manns á sex bílum fóru þjóðveginn austur í Egilsstaði og inn í Snæfell á föstudegi og á laugardag var farið frá Snæfelli um Kárahnjúka inn að Öskju og gist þar. Á sunnudag var haldið frá Öskju í Herðubreiðarlindir og þaðan út á þjóðveg. Þaðan hélt hluti hópsins heim en hinir fóru í Snæfell að sækja bíl sem skilja varð eftir þar og á mánudagsmorgun var haldið á jökulinn á þrem bílum og komið niður Skálafellsjökul. Mjög þung færð var á jöklinum en að öðru leiti var veður og færð í ferðinni góð og allt gekk þetta vel.

Þorkell á von á að fleiri ferðir verði farnar í vetur og verður það tilkynnt með góðum fyrirvara en ekki er gerð nein fyrirfram ferðaáætlun fyrir veturinn.
Rúmlega 100 manns er í Hornafjarðardeild 4 x 4 klúbbnum og hefur félögum fjölgað ár frá ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica