Febrúar

Bókagjöf frá Kína

FAS fékk bókagjöf frá kínverksa sendiráðinu - 28.02.2008 Febrúar

Í dag fékk FAS bókagjöf frá kínverksa sendiráðinu. Þetta eru allt bækur á ensku sem fjalla um Kína og menningu landins, alls um tuttugu bækur. Gjöfin kemur í kjölfarið á samskiptum sem Vilhjálmur Gíslason hefur staðið fyrir af hálfu skólans við sendiráðið. Undanfarna daga hefur verið hér í heimsókn Tao (hún fékk íslenska nafnið Sunna) frá gömlu höfuðborg Kína, Nanging. Hún ferðaðist víða um og ræddi við menn, m.a. um ferðamál og hugsanleg ferðalög Kínverja til Íslands. Í gær voru Tao og Vilhjálmur á fundi í kínverska sendiráðinu þar sem hún lýsti því sem á daga hennar hafði drifið. Þar á bæ huga menn á ferð hingað austur á næstunni til að skoða aðstæður. Lesa meira
 
Kólesterólmæling

Málþing um heilbrigðismál á landsbyggðinni haldið í Nýheimum - 27.02.2008 Febrúar

Í undirbúningi er málþing um heilbrigðismál á landsbyggðinni (í dreifbýli) (rural medicine) í Nýheimum og fer það fram 3. apríl n.k. Markmið málþingsins er að draga fram þær aðstæður sem heilbrigðisstarfsmenn á landsbyggðinni vinna við. Heilbrigðisráðherra ávarpar þingið, landlæknir fjallar um málaflokkinn og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis mun taka saman niðurstöður í lok þingsins. Einnig munu fulltrúar heilbrigðistétta á landsbyggðinni segja frá sínu sjónarhorni hvert á sínum starfsvettvangi. Athygli er vakin á að það er Flugfélagið Ernir sem hafa með höndum flug á Hornafjörð og er flogið að morgni fimmtud. frá Reykjavík kl. 7:30 og frá Hornafirði kl.. 17.30. Lesa meira
 
Fundur Vegagerdarinnar um vegstadi

Fjölmennur fundur um vegstæði um Hornafjörð - 26.02.2008 Febrúar

Fundur Vegagerðarinnar með íbúum á Hornafirði vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót fór fram í Nýheimum í gærkvöldi. Erna Hreinsdóttir verkefnastjóri hjá Vegagerðinni útskýrði mat á umhverfisáhrifum á þeim þrem leiðum sem til skoðunar eru þ.e. leið 1, leið 2 og leið 3 og mælir Vegagerðin með að leið 1 verði valin. Vegagerðin segir að leið 1 sé ódýrust þessara þriggja og hefur minnst umhverfisáhrif í för með sér. Því næst voru fyrirspurnir fundargesta og álit þeirra á fyrirhuguðum vegstæðum og var Auður Magnúsdóttir hjá VSÓ Ráðgjöf fyrir svörum. Algjör einhugur var hjá öllum þeim sem til máls tóku um að ekki kæmi til greina önnur leið en leið 3 og lagði hver og einn fram rök fyrir máli sínu og fóru menn eindregið fram á að Vegagerðin samþykkti stystu, beinustu og öruggustu leiðina sem er leið 3. Myndir og kort af vegstæðum og umhverfi þeirra voru til sýnis á bókasafninu og í kaffistofunni og þar gafst mönnum tækifæri að ræða við starfsmenn Vegagerðarinnar og VSÓ. Lesa meira
 
Upplýsingasvæðið í Skaftafelli (myndasafn)

27 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs - 21.02.2008 Febrúar

Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs rann út mánudaginn 18. febrúar og sóttu 27 um starfið. Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun sem heyrir undir umhverfisráðherra. Með stjórn stofnunarinnar og umsjón með rekstri þjóðgarðsins fer sérstök stjórn skipuð af ráðherra. Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður Evrópu, verður stofnaður seint á þessu ári eða í upphafi þess næsta. Stefnt er að því að þjóðgarðurinn verði um 15.000 km² að stærð, eða um 15% af flatarmáli Íslands, og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum, m.a. vegna þess að þar eru átök elds og ísa enn í fullum gangi. Lesa meira
 
FAS_fotbolti

FAS meistarar í fótbolta - 21.02.2008 Febrúar

Í morgun fór fram fótboltamót í FAS en það er einn liður í opinni viku. Margir þekktir kappar mættu og sýndu hreint ótrúleg tilþrif á vellinum. En það mættu líka nokkrir sem eru þekktari fyrir annað en tuðruspark. Öll liðin þurftu að keppa innbyrðis og stóð hver leikur yfir í 12 mínútur eða sex mínútur á hálfleik. Í leikslok voru það þau Ásta Steinunn, Haukur, Jóhann Bergur og Ragnar Ingi sem stóðu uppi sem sigurvegarar og hljóta þau sæmdarheitið FAS meistarar í fótbolta. Þau fá einnig verðlaunapeninga fyrir frammistöðuna. Lesa meira
 
Dr._John_Hull

Nýsköpun í ferðaþjónustu: Hagnýt dæmi frá jaðarsvæðum - 21.02.2008 Febrúar

Mánudaginn 25. febrúar n.k. flytur John S. Hull, doktor í ferðamálafræði, fyrirlestur á vegum Háskólasetursin á Hornafirði og Ferðamálaseturs Íslands um nýsköpun í ferðaþjónustu á jaðarsvæðum. Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Nýheimum og hefst kl. 17:00. Að erindinu loknu verða almennar umræður um efni þess þar sem Dr. Hull mun svara fyrirspurnum viðstaddra. John Hull nam upphaflega umhverfis- og skipulagsfræði en snéri sér síðan að ferðamálum og gerði doktorsrannsókn um sjálfbærni ferðaþjónustu á norðurslóðum sem hann lauk árið 1998. John hefur síðan unnið að fjölda verkefna í heimalandi sínu Kanada (einkum í Nýfundnalandi, Labrador og Québec), í Mið-Austurlöndum og í Afríku. Hann hefur einnig verið þátttakandi eða ráðgjafa í nokkrum norrænum verkefnum sem Íslendingar hafa átt aðild að og þannig öðlast góða þekkingu á ferðaþjónustumálum hérlendis. Lesa meira
 
FAS_IMG_0842

Heimsókn FAS í Verkmenntaskóla Austurlands - 21.02.2008 Febrúar

Í gær var farið í heimsókn í VA en þar voru haldnir Ólympíuleikar Austurlands með þátttöku ME, VA og FAS. Lagt var af stað uppúr 9 og fór full rúta eða vel yfir 40 manns austur. Keppt var í mörgum íþróttagreinum s.s. fótbolta, brennibolta, bandí, reiptogi og troðslu. Einnig var dvergakast sem felst í því að kasta léttri manneskju yfir hástökkssúlu. Keppnin stóð í nokkra tíma og þegar uppi var staðið endaði FAS í þriðja sæti. Í sumum greinum sýndi FAS þó ótrúleg tilþrif eins og sést á meðfylgjandi mynd. Lesa meira
 
Piper PA28

Flugvél í sjóinn fyrir austan land - 21.02.2008 Febrúar

Í dag um klukkan 11:30 bárust boð um að eins hreyfils flugvél hefði misst afl og horfið af ratsjá um 130 sjómílur suðsuðaustur af Hornafirði. Þyrla og Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út. Skipum á svæðinu hefur verið tilkynnt um slysið og beðin að svipast um. Varðskip er á leið á staðinn. Upplýsingar um þjóðerni liggja ekki fyrir. Vélin er skráð í Bandaríkjunum af gerðinni Piper PA28 og var með einn mann innanborðs. Vélin hvarf af ratsjá 19 mínútur yfir ellefu í morgun en þá var hún um 120 sjómílur suðaustur af landinu eða um 240 sjómílur suðaustur af Keflavík. Lesa meira
 
hesta_Picture_070

Fyrstu vetrarleikar Hornfirðings - 20.02.2008 Febrúar

Um síðustu helgi fóru fram fyrstu vetrarleikar Hornfirðings þ.e. sunnudaginn 17. febrúar og fóru þeir fram í góðu veðri. Keppnin fór fram á veginum við Stekkhól þar sem að veðrátta síðustu daga leyfði i ekki notkun á keppnisvellinum vegna bleytu. Dómarar voru Friðrik Reynisson og Eyjólfur Kristjónsson Keppt var í Barnaflokki, unglingaflokki, áhugamannaflokki og opnum flokki. Einnig var keppt í B flokki. Kristján V Björgvinsson fékk viðurkenningu fyrir skemmtileg tilþrif. Lesa meira
 
Axarvegur

Vegagerðinni send umsögn vegna heilsársvegar um Öxi - 20.02.2008 Febrúar

Bæjarstjóri Hornafjarðar fyrir hönd sveitarfélagsins hefur sent Vegagerðinni umsögn um heilsársveg um Öxi en í því bréfi kemur fram eftirfarandi 1. Umhverfi og náttúra framkvæmdasvæðis: Undirritaður telur að nýtt vegstæði hafi lítil sem engin áhrif á svæðið, hvorki sjónrænt né vegna landslagsáhrifa og lífríkis. Núverandi vegstæði heldur sig að mestu og áhrifin verða því minniháttar. Nú þegar er mikil umferð um Öxi og því mikilvægt að tryggja sem mest öryggi þeirra sem leið eiga þar um. Beitilönd verða ekki fyrir áhrifum enda liggur leiðin að stærstum hluta um urðir og ógróin lönd. Framkvæmdin mun því að mati undirritaðs ekki hafa nein áhrif á dýralíf á svæðinu og eða raska öðrum náttúrulegum gæðum þess. Lesa meira
 
Færarúllur í öndvegi

Mokafli hjá línubátum - 20.02.2008 Febrúar

Mokafli er hjá línubátum sem róa frá Hornafirði afli 5-10 tonn í róðri. Unnsteinn Þráinsson á línubátnum Sigga Bessa segir stutt að fara á veiðisvæðið það sé hér rétt fyrir utan. Mest af aflanum er stór og góð ýsa en sáralítið sést af þorski og er það vissulega áhyggjuefni, þó lítið megi veiða af honum. Ýsan fer að mestu á fiskmarkað. Unnsteinn segir að gott verð hafi fengist fyrir ýsuna í vetur, verðið á henni ræðst mikið af veðráttunni og hversu oft gefur á sjó það er fljótt að hækka þegar brælurnar koma og það hefur ekki verið neinn skortur á þeim í vetur. Það sem við veiðum af þorski fer til vinnslu í Bestfiski. Lesa meira
 
Hornafjardarmanni_FAS

Ratleikur í gær - Hornafjarðarmanni í dag - 19.02.2008 Febrúar

Opin vika í FAS hófst í gær með ratleik. Fimm stöðvar voru vítt og breitt um bæinn og röltu nemendur á milli þeirra. Á hverri stöð þurfti að leysa ýmsar þrautir og fengu hóparnir stig eftir því hvernig til tókst. Það var til mikils að vinna því sigurvegarnir í ratleiknum fengu miða á borðhaldið á árshátíðinni sem verður næsta föstudag. Í morgun var svo spilaður Hornafjarðarmanni. Í fyrstu umferð spiluðu tæplega fjórir tugir manna. Hefðbundnum reglum í Hornafjarðarmanna var fylgt. Spiluð voru 27 manna úrslit, síðan undanúrslit sem níu manns tóku þátt í og svo úrslitin sjálf. Það voru þau Eik, Hanna og Hörður sem náðu alla leið í úrslitin og þegar staðið var upp frá úrslitaspilinu kom það í ljós að Eik Aradóttir er Framhaldsskólameistari í Hornafjarðarmanna árið 2008. Í öðru sæti var Hanna Guðrún Kolbeins og Hörður Þórhallsson varð í þriðja sæti. Lesa meira
 
Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur

Þórey kosin formaður Búnaðarsambands A-skaft. - 18.02.2008 Febrúar

Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu kaus nýjan formann fyrir helgina og að þessu sinni ríkti jafnrétti kynjanna því við embættinu tók Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur og starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands. Með henni í stjórn eru Steinþór Torfason á Hala og Guðjón Þorsteinsson á Svínafelli í Öræfum, fráfarandi formaður er Bjarni Hákonarson í Dilksnesi. Þetta breytir ekki neinu mínu starfi segir Þórey, þetta eru bara félagasambönd bænda í sýslunni og sjá um rekstur búnaðarsambandsins hér eins að halda uppi góðu samstarfi við Búnaðarsamband Suðurlands sem við erum hluti af. Lesa meira
 
Busavigsla FAS 2007

Opin vika í FAS og útvarp FM 105,7 - 18.02.2008 Febrúar

Þessa viku fer fram opin vika í FAS. Þá verður hefðbundin kennsla fellt niður og nemendur kljást við önnur verkefni. Í morgun var fóru nemendur í ratleik. Eftir hádegi vinna nemendur svo í hópum. Framhaldsskólinn verður með útvarpshóp sem mun sjá um útvarpsútsendingu á meðan á opinni viku stendur, sent er út á FM 105,7. Einnig verður fengist við í opinni viku: Hornafjarðarmanni, heimsókn í VA, fótboltamót og svo hápunktur vikunnar árshátíðin sem verður föstudaginn 22. febrúar. Hópar sem nemendur hafa valið eru auk árshátíðarhóps, útvarpshópur, blaðahópur, tónlistarhópur, ljósmyndahópur, kvikmyndahópur og svo er einn hópur sem ætlar að nota vikuna til að undirbúa atriði FAS í söngvakeppni framhaldsskólanna. Lesa meira
 
Fiskimjölsbræðslan Höfn

Loðnan farin að ganga á grunnið - 18.02.2008 Febrúar

Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá allgóðan afla. Hafrannsóknaskip er komið á svæðið og eru vonir bundnar við að fiskifræðingum takist að mæla stofninn á næstu dögum, að því er fram kemur á Visir.is Lesa meira
 
Lobster

Fóður og fjör á Hótel Höfn - 16.02.2008 Febrúar

Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð sem lífga mun upp á skammdegið. Hótel Höfn mun að sjálfsögðu taka þátt í fjörinu og bjóða upp á sérstakan matseðil næstu helgi. Lesa meira
 
Tveir nýir snjósleðar

Björgunarfélagið fær tvo nýja snjósleða - 16.02.2008 Febrúar

Björgunarfélag Hornafjarðar hefur keypt 2 nýja snjósleða af gerðinni Lynx 800 X strim 150 hestöfl. Sleðarnir eru vel búnir björgunartækjum ss. VHS talstöð, GPS tæki og nauðsynlegum sjúkrabúnaði. Haukur Sveinbjörnsson umboðsmaður Ellingsen á Höfn afhenti Björgunarsveitinni sleðana í dag,föstudag. Við vorum að endurnýja tvo sleða af fjórum sem sveitin á segir Jónas Friðriksson formaður Björgunarfélagsins, þetta eru nettari, léttari og kraftmeiri tæki en þeir gömlu. Við fengum mjög góða fyrirgreiðslu og góðan afslátt hjá umboðsaðilanum sem er Ellingsen og einnig að fá sleðana afhenta hér sparaði okkur líka útgjöld. Björgunarsveitin er vel búin tækjum og á auk þessara nýju sleða 2 stóra snjósleða og 3 bíla sem allt eru nýleg tæki. Lesa meira
 
Þorrablót Hjúkrunardeildar Skjólgarðs

Starfsmenn og heimilisfólk á Hjúkrunardeild Skjólgarðs héldu sitt Þorrablót í dag - 14.02.2008 Febrúar

Hefðbundinn Þorramatur var á borðum í hádeginu og kl. 15 var skemmtidagskrá. Þorbjörg Helgadóttir bað Hrein Eiríksson að sjá um að kynningu á skemmtiatriðum og einnig las hann stutta gamansögu, kvennakórinn söng nokkur lög , Guðbjartur Össurarson las frumsamin ljóð sem vöktu mikla ánægju viðstaddra enda maðurinn sérstaklega hagmæltur. Séra Sigurður Kr. Sigurðsson stjórnaði almennum söng við góðar undirtektir viðstaddra og undirleik annaðist Kristín kona hans. Lesa meira
 
Ráðherraheimsókn

Þetta verður ekki bara stór þjóðgarður heldur líka einstakur - 13.02.2008 Febrúar

Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir kom í heimsókn til Hornafjarðar í dag ásamt Önnu Kr. Ólafsdóttur aðstoðarmanni ráðherra sem jafnframt er formaður yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Fréttamaður vefsins hafði tal af ráðherra þar sem hann var að skoða Jöklasýninguna ásamt aðstoðarmanni sínum og bæjarstjórnarmönnum, og spurði hvað umhverfisráðherra finnist um staðinn og það sem verið er að gera hér. Mér líst vel á það sem ég hef skoðað hér, segir ráðherra, ég er búin að funda með bæjarstjórn, fara í Nýheima og skoða Jöklasýninguna. Við höfum rætt mikið um Vatnajökulsþjóðgarð og ég hef líst því yfir við bæjarstjórn að ég er mjög ánægð með það hvernig Hornfirðingar hafa tekið á uppbyggingu þjóðgarðsins og mér finnst andinn hér mjög jákvæður. Lesa meira
 
Norðurljósablús

Norðurljósablús 29. febrúar til 2. mars næstkomandi - 13.02.2008 Febrúar

Þrjú erlend og sex íslensk blúsbönd koma fram á Blúshátíðinni Norðurljósablús 2008 verður haldin í þriðja sinn hér dagana 29. febrúar til 2. mars næstkomandi. Að þessu sinni var ákveðið að gefa ungu íslenski blústónlistarfólki tækifæri til að koma fram og jafnframt að kynna tónlistarmenn frá norðurlöndunum fyrir landsmönnum. Þrjár sveitir að utan í ár. Øernes blues band frá Danmörku, Street Cowboys frá Smálöndunum í Svíþjóð og síðast en ekki síst Emil & the Ecstatics frá Svíþjóð. Þeir síðastnefndu voru aðal gestir Norðurljósablúss 2006 og gerðu gríðarlega lukku. Þá ættu Hornfirðingar að kannast við svipinn á trommuleikaranum í sænsku sveitinni Higgins and the Lowdowns því það er enginn annar en Ólafur Karl Karlsson frá Móhóli. Lesa meira
 
Ritgerdarsamkeppni_1

Nemandi í Grunnskólanum í Hofgarði hlaut þriðju verðlaun í ritgerðarsamkeppni - 13.02.2008 Febrúar

Lydía Angelíka Guðmundsdóttir í Grunnskólanum Hofgarði hlaut þriðju verðlaun í ritgerðarsamkeppni sem samtökin Vinir landsbyggðarinnar standa fyrir. Samkeppnin er meðal valinna skóla ár hvert og hefur það að markmiði að hvetja unglinga til að leggja fram hugmyndir um hvernig samfélagi þau vilja búa í og hvað þau geta gert fyrir heimabyggðina. Verðlaunin voru afhent af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í Norræna húsinu s.l. mánudag. Tveir skólar úr hverjum landshluta taka þátt í keppninni. Um 400 ritgerðir voru skrifaðar af nemendum í 8.–10. bekk en 21 var valin fyrir dómnefnd. Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni eru hluti af samtökunum Landsbyggðin lifir. Lesa meira
 
Eldvarnagetraun

Slökkvilið veitti viðurkenningu og verðlaun fyrir þátttöku í eldvarnagetraun - 13.02.2008 Febrúar

Í morgun fékk Slökkvilið Hornafjarðar heimsókn frá átta ára krökkum úr Nesjaskóla en þau komu þangað í fylgd með kennurum sínum. Tilefni heimsóknarinnar var að taka á móti verðlaunum fyrir þátttöku þeirra í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Nöfn 34 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Eitt nafn kom úr þessum potti og er hann nemandi í Nesjaskóla og heitir Ágúst Máni Aðalsteinsson, í vinning hlaut hann viðurkenningarskjal Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með árituðu nafni, reyksskynjara, forvarnablað og SONY MP3 spilara. Slökkviliðsmenn óskuðu Ágústi til hamingju, og hans bekkjarfélögum fyrir samviskusamlega úrvinnslu á þessari getraun. Lesa meira
 
Fiðlarinn á þakinu

Öflug leikstarfsemi á Hornafirði - 13.02.2008 Febrúar

Þegar vefurinn hafði samband við Magnús J. Magnússon fyrir helgina og spurði hann frétta af leiklistarlífinu á staðnum og hvaða stórsýning yrði fyrir valinu sagði hann þetta allt koma í ljós eftir helgina. Nú er komið í ljós að fyrir valinu varð Rocky Horror Picture Show sem Jón Ingi Hákonarson leikstýrir og verður nánar sagt frá því hér á vefnum síðar. Leikstarfsemi hefur löngum verið öflug á Hornafirði og einkum hjá unglingum eftir að kennarinn Magnús J. Magnússon flutti til Hornafjarðar 1993. Magnús stofnaði þá leikhópinn Lopa með unglingunum og á þessum 15 árum hafa frumsýningar hjá leikhópnum Lopa verið 20 þar af hefur Magnús samið handrit fyrir 15 þeirra sýninga. Lesa meira
 
Höfn

Sveitarfélagið Hornafjörður með hæstu einkunargjöf af landsbyggðarsveitarfélögum - 12.02.2008 Febrúar

Samkvæmt úttekt Vísbendingar vikurits um viðskipti og efnahagsmál, á fjárhagslegum mælikvörðum fær Sveitarfélagið Hornafjörður hæstu einkunn af landsbyggðarsveitarfélögum með einkunnagjöfina 6,8 og er í fjórða sæti ef með eru talin yfir sveitarfélögin Garðabær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær. Árið 2006 var Sveitarfélagið Hornafjörður í 10 sæti en hefur nú hækkað sig upp í 4 sætið. Til hamingju Hornafjörður! Í frétt frá Vísbendingu kemur áfram að þrjú sveitarfélög eru með einkunn yfir 7,0. Það eru annars vegar Garðabær með meðaleinkunnina 8,3, Seltjarnarnes með einkunnina 7,3 og Mosfellsbær með 7,0. Efstu tvö sveitarfélögin eru þau sömu og í fyrra. Seltjarnarnes lækkar í einkunn vegna hás veltufjárhlutfalls og þess hve rekstrarafkoman er hátt hlutfall af tekjum. Ef reiknað er með því að þetta sé tímabundið ástand má segja að staða Seltjarnarness sé afar góð. Lesa meira
 
Ari Þorsteinsson

Framtíð nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs á Suðausturlandi - 12.02.2008 Febrúar

Á fundi bæjarráðs í gær kom fram hjá Hjalta Þór Vignissyni bæjarstjóra að verið er að skoða þann möguleika að Nýsköpunarmiðstöð Íslands taki yfir starfsemi Frumkvöðlaseturs Austurlands. Á fundinum lagði Hjalti Þór fram minnispunkta um málið í framhaldi af komu forstjóra og framkvæmdarstjóra Nýsköpunarmiðstöðvarinnar (NMI) til Hafnar í lok janúar og frá heimsókn þeirra Ara Þorsteinssonar framkvæmdarstjóra Frumkvöðlasetursins til NMI í Reykjavík. Í minnispunktunum kemur fram að með mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar var NMI falið að stofna til starfsemi á Höfn í Hornafirði. Fyrir var Frumkvöðlasetur Austurlands með starfsemi og hafði náð mikilsverðum árangri á sínu starfsviðið. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar leiddi til þess að móta þurfti stefnu i nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi í Sveitarfélaginu Hornafirði til framtíðar. Lesa meira
 
Flugslysaæfing árið 2000

112-dagurinn er í dag, 11. febrúar - 11.02.2008 Febrúar

112 dagurinn er í dag, 11. febrúar, en tilgangur hans er að minna á neyðarnúmerið og það víðtæka net björgunaraðila sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Um 12 fóru viðbragðsaðilar einn hring um höfn með bíla sína til að minna á mikilvægi þessa dags. Auk þess er unnt að hafa samband við barnaverndaryfirvöld um allt land í gegnum neyðarnúmerið, 112. Neyðarlínunni bárust um 266 þúsund neyðarsímtöl á síðasta ári og var í langflestum tilvikum beðið um aðstoð lögreglu og slökkviliða. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flytur ávarp og Lögreglukórinn tekur nokkur lög fyrir gesti. 112-dagurinn er nú haldinn hér á landi í fjórða sinn. Lesa meira
 
Heddi frændi

Heddi Frændi kominn á flot - 08.02.2008 Febrúar

Heddi Frændi kominn á flot aftur og kominn á sinn stað við Óslandsbryggjuna. Vignir Júlíusson sagði að vel hefði gengið að ná Hedda upp úr sjónum. Þegar búið var að dæla sjó úr bátnum var tiltölulega auðvelt að koma honum á réttan kjöl með aðstoð frá Birni Lóðs. Ljóst er að Heddi Frændi verður ekki gerður út framar, aftur á móti er óljóst hvernig hægt verður að farga honum. Best væri ef eitthvert sjóminjasafn vildi fá hann því hann á ábyggilega merkilega útgerðarsögu ekki síður en önnur fiskiskip. |nl| Lesa meira
 
Leiktæki í sundlaugina

Búið að panta þrjú leiktæki til notkunar í vaðlaugina - 07.02.2008 Febrúar

Þó ekki sjáist ennþá mikið af nýju sundlaugarbyggingunni er farið að huga að þeim búnaði sem settur verður þar upp. Búið er að velja og panta þrjú leiktæki til notkunar í vaðlaugina en einhverja mánuði tekur að fá þau á staðinn. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni og umhverfissviðs segir að verið sé að skoða hvernig rennibraut verði fyrir valinu og hversu há og stór hún verði. Nefndin sem sér um íþróttamannvirki á staðnum er sammála um að velja rennibraut sem er sambærileg og er í Kópavogi en sú rennibraut er opin 5,5 m. á hæð og grá að lit. Lesa meira
 
Hreindýr í Nesjum

Hreindýrum fjölgar í Nesjum - 06.02.2008 Febrúar

Hreindýrahjarðir eru óneytanlega augnayndi og hrífandi að sjá þessi tignarlegu dýr bera sig um og hvað þau eiga létt með að hreifa sig.Undanfarið hefur lítið sést til hreindýra þegar farið er um þjóðveginn í Lóni aðeins smá hópar með 4-8 dýrum einn og einn hópur stærri. Vefurinn hafði samband við Stefán Helgason á Setbergi, sem veit manna mest um hreindýr hér um slóðir, og spurði hann hverju þetta sætti; Hélt hann að ástæðan gæti verið sú að lítið væri fyrir þau að hafa á sléttlendinu núna og eins væri mikil hálka því leituðu dýrin inn til heiðanna. Hreindýrum sem halda sig í Nesjum og á Mýrum hefur fjölgað mikið og taldi Stefán að í Nesjum væru eitthvað á annað hundrað dýr. Bændur eru ekki alltaf hressir með að hafa stóra hópa á túnum sínum því dýrin eiga það til að ryðja niður girðingum verði þau hrædd eða einhver styggð komi að þeim þá rjúka þau áfram yfir hvað sem fyrir verður og skilja eftir ónýtar girðingar á stórum svæði. |nl| Lesa meira
 
Öskudagur í Hafnarskóla

Öskudagurnn í blíðskaparverðri - 06.02.2008 Febrúar

Í dag fengu fyrirtæki og stofnanir heimsóknir frá krökkunum í Grunnskóla Hornafjarðar eins og venjulega á Öskudaginn þar sem sundið var fyrir starfsfólkið. Mörg fyrirtæki eru farin að undirbúa komu krakkana og velja eitthvað gott og gagnlegt fyrir sönginn. Það er ekki bara sælgæti heldur marg nýtilegt og m.a. gaf Menningarmiðstöð Hornafjðarðar krökkun sundkort sem þau geta notað og farið frítt í sund í heila viku. Veðrirð í dag var upp á sitt besta miðað við síðasta öskudag en þá þurftu krakkarir að berjast við rokið til að komast á milli staða. Lesa meira
 
Kvennakórinn á landsmóti 2005

Landsmót Kvennakóra á Höfn í apríl - 06.02.2008 Febrúar

Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið hér á Höfn í apríl n.k. Er það haldið á 3.ára fresti og var síðast í Hafnarfirði. Það er mikill heiður fyrir Kvennakórinn að fá að halda næsta mót og ætlum við að kappkosta að mótið verði sem glæsilegast Einnig ætlum við að leggja mikla áherslu á að kynna sýsluna og bæinn okkar sem best og veita þeim rúmlega 300 konum og stjórnendum þeirra sem hingað koma ógleymanlega heimsókn. Og þá um leið að þetta landsmót verði samfélaginu hér öllu lyftistöng en tryggt verður að dagskráin gefi svigrúm til annars en að syngja. Þessa helgi verða öll söfn opin og frítt inn, eins verður frítt í sund fyrir mótsgesti og verður sett upp atvinnu/mannlífssýning á vegum Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum. Þetta mót er stærðar lyftistöng fyrir samfélagið okkar og má búast við því að gestir okkar setji svip á bæinn þessa helgi. Lesa meira
 
Islandsmeistaramotid_2007

Íslandsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna árið 2008 - 06.02.2008 Febrúar

Mótið verður föstudaginn 8. febrúar n.k. kl 20:00 í Skaftfellingabúð Laugarvegi 178 Reykjavík. Þriggjamanna úrslitaumferð verður að venju í uppafi þorrablóts Hornfirðinga daginn eftir. Á mótinu í fyrra sigraði Sigurpáll Ingibergsson (Palli á Fiskhól) og til úrslita spiluðu sömuleiðis Sigríður Guðmundsdóttir (kona Gunnars Bernhards frá Þinganesi) og Halldór Tryggvason. Góð þátttaka hefur verið undanfarin ár og keppnin spennandi. Þó að einhverjir geti ekki leynt keppnisskapinu hafa þátttakendur átt ánægjulegar samverustundir þar sem góðir kunningjar hittast og spjalla saman. Lesa meira
 
Þrykkjan

Þrykkjan á fullu - 06.02.2008 Febrúar

Krakkarnir í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni eru ýmislegt að starfa. Á laugardagskvöldið var velheppnað íþróttamót í íþróttahúsinu. Á mánudaginn gaf fjölmiðlahópur Þrykkjunnar út blað sem nefndist HEPPAN. Í blaðinum var sagt frá ýmsum viðburðum úr starfsemi Þrykkjunnar í haust og viðtal er við Sigrúnu Ingu Sigurgeirsdóttur sem rifjar upp minningar sínar úr Þrykkjunni og Heppuskóla. Sigrún Inga stundar nú nám við Háskóla Íslands. Róslín Valdemarsdóttir segir frá ferð sinni á Old Trafford völlinn í haust sem var mikil upplifun. Í Fjölmiðlahópnum eru þær Róslin Valdemarsdóttir, Yrsa Nökkvadóttir, Alma Bjarnadóttir og Amna Hasecic sem allar eru í 9. bekk. Blaðið var sent inn á öll heimili nemenda í 8. til 10. bekk. Lesa meira
 
Hugrún Harpa Reynisdóttir

Þekkingarnetið bætir við starfsmanni á Höfn - 05.02.2008 Febrúar

Í janúar á þessu ári hefur Þekkingarnetið rekið starfsstöð á Hornafirði í eitt ár og er óhætt að segja að Hornfirðingar hafi tekið starfseminni og því sem boðið hefur verið uppá mjög vel. Starfsemin hefur vaxið hratt og nú hefur verið ráðinn annar starfsmaður, Hugrún Harpa Reynisdóttir. Hugrún Harpa er Mýrarmaður, dóttir Reynis Sigursteinssonar og Katrínar Lilju Haraldsdóttur. Hugrún Harpa er nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þekkingarnetið fer af stað með starfsemi sína af fítonskrafti nú eftir þorrablótið, sagði Ragnhildur verkefnisstjóri í viðtali við hornafjörð.is í dag. Nú hefur námskeiðsbæklingur verið borinn í hvert hús í Sveitarfélaginu og eins og sjá má þar verða fjölbreytt námskeið í boði á vorönninni. Lesa meira
 
Handverk

Átak til atvinnusköpunar, auglýst eftir styrkjum - 05.02.2008 Fréttir fruma

Impra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna verkefnisins Átak til atvinnusköpunar. Þetta er stuðningsverkefni á vegum Iðnaðarráðuneytisins, en Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu. Í stjórn Átaksins sitja fimm stjórnarmenn og er Sigríður Ingvarsdóttir formaður stjórnar. Markmið Átaksins er að styrkja nýsköpunarverkefni á vegum fyrirtækja og einstaklinga, efla frjóa hugsun, auka verðmætasköpun og bæta þannig samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og frumkvöðla. Lögð er áhersla á að styðja verkefni snemma á þróunarstigi og sérstaklega horft til verkefna með afgerandi nýsköpunargildi. Nauðsynlegt er að verkefni séu atvinnuskapandi á Íslandi til framtíðar. Lesa meira
 
Krosseyjarbryggja

Bæjaráð samþykkti tillögu atvinnumálanefndar vegna skerðingar á aflaheimildum þorsks - 05.02.2008 Febrúar

Bæjaráð samþykkti tillögu atvinnumálanefndar um úthlutun 8,8 m.kr. framlagi frá félagsmálaráðuneytinu vegna skerðingar á aflaheimildum þorsks. Á fundi atvinnumálanefndar 30. janúar s.l. samþykkti eftirfarandi tillögur á fundi sínum: 1.Að lagðar verði allt að 2 milljónir króna til að undirbúa vinnslu og útflutning á vatni í héraðinu. Frumkvöðlasetur Austurlands hefur unnið verkefna- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem gerir ráð fyrir kostnaði upp á 2 miljónir. Atvinnumálanefnd telur rétt að leitað verði til setursins að vinna verkefnið en leggur jafnframt áherslu á að aðrir hagsmunaaðilar leggi fram fjármuni í verkefnið. Lesa meira
 
Heddi frændi sokkinn

Heddi frændi sokkinn við bryggjuna - 05.02.2008 Febrúar

Það hefur ekki farið framhjá þeim sem hafa tekið Óslandsrúntinn í dag að við bryggjuna fyrir framan Bestfisk er bátur sem hefur sokkið þar við bryggjuna. Um er að ræða eikarbátinn Hedda frænda sem er 60 tonna eikarbátur smíðaður 1972. Ekki er vitað hvers vegna hann sökk en talið er að mögulegt sé að hann hafi frostsprungið og því vatn komist í hann. Báturinn er í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar og hefur verið bundinn við bryggju frá því Sveitarfélagið leysti hann til sín á uppboði hjá Héraðsdómi Norðurlands upp í skuld. Báturinn hefur verið í umsjón starfsmanna Hornafjarðarhafnar en það hefur staðið til að rífa hann. Þess ber að geta að ekki er lengur hægt að brenna báta né sigla þeim á haf út og sökkva. Lesa meira
 
Grásleppuveiðar

Gott atvinnuástand í Sveitarfélaginu - 04.02.2008 Febrúar

Mikill áhugi er núna í Hornfirðingum að efla og auka atvinnutækifæri í sveitarfélaginu og er mikill hugur í bæjarstjórn og bæjarstjóra að þar skuli taka á málum af krafti. Nýja árið byrjar vel hvað framkvæmdir í sveitarfélaginu varða og eru nýbyggingar bæði á Höfn og í sveitunum og ekki er að heyra annað en fólk sé bjartsýnt á framtíðina og að það ætlar ekki að sitja og bíða þess að tækifærin komi kannski einhvern tíman heldur finna þau og virkja. Atvinnuástand á Hornafirði á síðasta ári var gott og atvinna jöfn samkvænt upplýsingum frá Svæðismiðlun Vinnumálastofnunar Austurlands og núna eru aðeins 11 manns á atvinnuleysisskrá 3 konur og 8 karlar. Er þetta mun lægri tala en oft hefur verið á þessum árstíma. Lesa meira
 
Flugfélagið Ernir

Flugfélagið Ernir bætir við þriðjudagsflugi til Hafnar - 04.02.2008 Febrúar

Frá því Ernir tóku við flugi á Höfn hefur farþegastraumur aukist mikið. Vegna þessarar aukningar hefur verið tekin sú ákvörðun að bæta við flugi á þriðjudögum, en ekki hefur verið flogið áður þá daga. Um er að ræða hádegisflug á þriðjudögum yfir veturinn og síðan verður flogið að morgni og á kvöldin yfir sumarið. Þessar breytingar taka í gildi 19. febrúar og verður þá flogið hvern einasta virka dag og á sunnudögum hingað til Hafnar. Lesa meira
 
Þorraferð 2008 4x4 Hornafjarðardeild

Þorrablótsferð 4x4 í Hólaskjól - 01.02.2008 Febrúar

Þorrablót Hornafjarðardeildar 4x4 klúbbsins verður haldin í Hólaskjóli á Fjallabaksleið um helgina 15-17 febrúar. Farið verður í Hólaskjól á föstudagskvöld og er reiknað með að leiðin inn hálendið sé fær öllum jeppum sem á annað borð er hægt að keyra í snjó og þar er gisti pláss fyrir fjölda fólks. Á laugardaginn er ætlunin að skoða sig um þarna á hálendinu og þeir sem vilja njóta útivistarinnar sem best geta haft með sér sleða eða skíði, alveg kjörið fyrir börnin og unglingana. Á laugardagskvöld er sameiginlegur kvöldverður, þorramatur útbúinn af einhverjum matreiðslumeistaranum hér á Höfn. Eins og á öllum góðum þorrablótum er skemmtinefnd sem sér um skemmtidagskrána og þau sem að þessu sinni bera ábyrgð á henni eru Jón Bragason, Magnhildur Pétursdóttir, Unnsteinn Þráinsson og Sigurður Guðmundsson. Á sunnudag verður haldið heim. Þetta er fjölskylduferð og því tilvalið að taka börnin með . Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica