Janúar
Mikael
Mikael
Mikael ehf.byggir sundlaug á Höfn
Mynd 1 af 2
1 2

30.01.2008 Janúar

Framkvæmdir við sundlaugabyggingu hafin

Framkvæmdir við sundlaugarbygginguna hér á Höfn eru komnar á fullt og eru starfsmenn Mikaels ehf. þessa dagana að vinna við sundlaugina og hefst steypuvinna strax þegar hlýnar í veðri, þá eru sökklar fyrir þjónustuhúsið tilbúnir. Við ætlum að vera snöggir að þessu segir Gunnar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Mikaels ehf. og vera búnir með uppsteypu snemma í vor og gera allt tilbúið fyrir innivinnu í húsinu. Gunnar reiknar með að verða með um 10 manns í vinnu við bygginguna í sumar ásamt öðrum verktökum sem að byggingunni koma. Undanfarin ár hefur Mikael ehf. verið með verkefni víða um land einkum við brúarsmíði nú síðast skammt frá Skálholti. Gunnar fagnar því að fá næg verkefni hér á heimaslóðum og segir mikið borgandi fyrir að geta farið að vinna hér heima eftir langa fjarveru.

Auk sundlaugarinnar vinna Gunnar og hans menn að viðbyggingu við söluskála N1 við Vesturbraut og einnig við byggingu gistiheimilis við gamla bæinn á Hala.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica