Janúar
Grunnskólanemendur í FAS
Grunnskólanemendur í FAS
Kennslustund í FAS (mynd FAS)

30.01.2008 Janúar

Grunnskólanemendur í FAS

Á þessari önn stunda vel á þriðja tug nemenda úr Grunnskóla Hornafjarðar nám í Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu. Þeir eru skráðir í átta mismunandi áfanga sem eru; bókfærsla, danska, enska, ferðamálafræði, grunnteikning, náttúrufræði, spænska og þýska. Fyrirkomulag námsins er mismunandi eftir áföngum. Í bókfærslu og þýsku er um að ræða séráfanga sem kenndir eru í FAS. Kennsla í grunnteikningu og náttúrufræði fer fram í grunnskólanum en prófað er í FAS. Í öðrum áföngum blandast grunnskólanemendur inn í hópana í FAS. Því er óhætt að segja að nemendur í 10. bekk komi víða við í FAS. Nú er komin mikil reynsla á samstarf skólanna þar grunnskólanemendum gefst tækifæri á að hefja nám í framhaldsskóla samhliða námi í grunnskóla.

Reynslan í gegnum tíðina hefur verið góð og standa nemendurnir sig yfirleitt mjög vel.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica