Fékk svar frá sendanda flöskuskeytsins
Við sögðum frá því fyrir nokkrum dögum þegar Kristofer Ögmundsson fann flöskuskeyti á Austurfjörum. En í því var bréf og nokkrir kanadískir smápeningar frá 2. vélstjóra á Kanadísku strandgæsluskipi. Flöskunni henti hann í sjóinn við Grand-banks við Nýfundnaland og bað hann finnandann að senda sér bréf með tilheyrandi upplýsingum og það gerði Kristofer. Svar barst um hæl í tölvupósti. Eigandi flöskuskeytisins heitir Albert White, giftur, á tvö uppkomin börn og býr rétt hjá St. John's höfuðborg Nýfundnalands. Í bréfinu undrast Albert á því hversu langt flöskuskeytið fór frá því hann setti það í sjóinn.
Í bréfinu þakkar Albert Kristófer fyrir það sem hann sendi í póstinum sem var Íslenskur smápeningur, geisladiskur og myndir sem móðir hans hafði málað, Albert sagði að það væri greinilegt að móðir Kristófers væri mjög hæfileikaríkur listamaður og ætlaði hann að innramma myndirnar og hengja upp á vegg.





Skrifa athugasemd