Janúar
Skautasvell
Skautasvell
Slökkviliðsmenn dæla á svellið

29.01.2008 Janúar

Slökkvilið á Hornafirði gerir skautasvell fyrir Hafnarbúa

Nú hefur Slökkviliðið á Hornafirði sprautað vatni á svellið sem er við Hossabitahaga til þess að nýta frostið sem nú er og er spáð næstu daga. Með þessu er þeir að búa til flott skautasvell á staðnum. Þetta svæði er kjörið fyrir útivistar og tilvalið að skella sér á skauta. Svæðið hefur verið mjög vinsælt sem skautasvæði en þar sem svell hefur verið mjög ójafnt ekki gott að skauta á því tók Slökkviliðið því til sinna ráða, mætti á svæðið með tvo tankbíla sem samtals taka 24 þúsund lítra af vatni. Nú er um að gera að mæta á skauta þegar frostið hefur lagað svellið og fyrir þá sem enn hafa ekki farið á skauta þá er bara að dusta rykið af skautunum og drífa sig.


Samkvæmt veðurstofunni þá verður Vestan 5-10 og léttskýjað að mestu. Lægir í kvöld. Austan 5-10 og snjókoma með köflum á morgun. Frost 0 til 5 stig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica