Janúar
Urðun sorps
Urðun sorps
Gísli í Ártúni flytur úrgang á urðunarstað
Mynd 1 af 3
1 2 3

28.01.2008 Janúar

Opnun tilboða í urðun úrgangs í sveitarfélaginu

Fyrir síðustu áranót auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir tilboðum í urðun úrgangi á urðunarsvæðinu í Lóni og bárust fjögur tilboð í verkið. Þeir aðilar sem buðu í verkið voru: Rósaberg ehf 4,75 kr/kg., Funi ehf 5,00 kr/kg., Gröfuþjónusta Olgeirs ehf 7,45 kr/kg og Papafjörður ehf 5,75 kr/kg. (upphæðir án vsk). Starfsmönnum bæjarins var falið að fara yfir tilboðin og leggja fyrir næsta fund. Hér er einungis um urðun úrgangs að ræða en það verk hefur Papafjörður ehf. séð um í nokkur ár. Urðunarsvæðið í Lóni er í landi Syðri-Fjarðar og er leigusamningur bæjarfélagsins á því til ársins 2030.

Með aukinni endurvinnslu hefur magns þess sem urða þarf heldur dregist saman og er framkvæmdastjóri umhverfissviðs Haukur Ingi Einarsson bjartsýnn á að sú þróun haldi áfram. Þetta hefur farið vel á stað og aukist hægt og rólega segir Haukur Ingi, við erum farin að sjá árangur t.d. fóru 24 tonn af rúllubaggaplasti í endurvinnslu á sl. ári einnig fer til endurvinnslu frá okkur í hverjum mánuði sléttur pappi, bylgjupappi, filmur, fernur og dagblöð. Sum af stóru fyrirtækjunum á staðnum eru ekki enn inni í þessu endurvinnsluátaki og fer þeirra pappi og annað endurvinnsluefni í ,,holuna´´ uppi í Lóni en vonandi koma þau í hóp þeirra umhverfisvænu sem fyrst því með sameiginlegu átaki okkar allra náum við bestum árangri.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica