Eiríkur Hansson og ísjakarnir í Hafnarskóla Hornfirðingur ársins
Á Þorrablóti Hafnarbúa var um helgina var tilkynnt um hver væri Hornfirðingar ársins 2007 og að þessu sinni var það Eiríkur Hansson og ísjakarnir í Hafnarskóla sem hlutu titilinn. Eiríkur hefur unnið gríðarlegt frumkvöðlastarf í gegnum tíðina í Hafnarskóla og meðal annars leiddi hann Ísjakanna, lið Hafnarskóla til sigurs í Legó hönnunarkeppninni sem haldin var í Reykjavík í haust. Með því fengu Ísjakarnir einnig rétt til þátttöku á stórmót First Lego League og eru á leið til Bandaríkjanna með vorinu til þess að taka þátt í því.
Eins og undanfarin ár stóð horn.is og Eystrahorn fyrir vali á Hornfirðingi ársins. Tekið var á móti tilnefningum síðan fyrir jól og voru vel á þriðja hundrað tilnefningar sem bárust, en alls voru 62 aðilar tilnefndir segir á horn.is





Skrifa athugasemd