Fann flöskuskeyti á Austurfjörum
Fjöruferðir hafa löngum haft aðdráttarafl fyrir bæði fyrir börn og fullorðna og alltaf er von um að finna þar eitthvað óvænt sem sjórinn hefur skolað á land. Heppnin var með Kristófer Ögmundssyni á Höfn þegar hann var á Austurfjörum fyrir nokkrum dögum og fann flösku sem var kirfilega lokuð og eitthvað í plastpoka í henni. Í ljós kom að þetta var bréf og nokkrir kanadískir smápeningar frá 2. vélstjóra á kanadísku strandgæsluskipi. Flöskunni hendir hann í sjóinn við Grand-banks við Nýfundnaland og biður hann finnandann að senda sér bréf með tilheyrandi upplýsingum. Bréfið var ekki dagsett og því ekki vitað hve lengi það hefur verið að berast hingað.
Lísa móðir Kristófers segir að búið sé að svara bréfinu og eins hafi þau sent bréfritara myndir og upplýsingadisk um suðausturland og hvernig hann finni Hornafjörð á netinu. Þetta var voða gaman og loksins kom að því að við fundum flöskuskeyti. Fjöruferðir eru í algjöru uppihaldi hjá Kristófer og hann hreinlega dýrkar þær og er alltaf að leita að einhverju spennandi reyndar var hann ekki að leita núna bara rakst óvænt á flöskuna þegar við vorum að koma að bílnum eftir góðan göngutúr. Kristófer er að vonum spenntur eftir að fá svar frá sendanda flöskuskeytisins.




Skrifa athugasemd