Horfðu til himins
Horfðu til himins
20.01.2008
Hljómsveitin Ný dönsk söng "Horfðu til himins" og átti sú laglína mjög vel við í dag þegar himinn skartaði í senn glitskýum og rauðum himni þegar sólin var að setjast seinni partinn. Einar Sveinbjörnss hjá Veðurstofunni segir að glitský, einnig nefnd perlumóðurský eða ísský myndist í heiðhvolfinu gjarnan í um 25 km. hæð. Venjuleg ský eins og við þekkjum þau helst ná sjaldnast á okkar slóðum upp fyrir 12 km hæð eða upp að endimörkum veðrahvolfsins við veðrahvörfin. Glitskýin samanstanda af örsmáum ískristöllum, sem myndast við þegar sá litli raki sem til staðar er þetta hátt upp nær að þéttast við sérstakar aðstæður. Glitskýja er helst að vænta um miðjan vetur og eftir sólarlag og fyrir sólaruppkomu geta þau verið böðuð sólskini, þótt aldimmt sé við jörð. Tilurð þeirra tengist myndun mikils kuldahvirfils yfir norðurpólnum sem nær hámarki í desember og janúar.
Ætla má að frostið upp í 25 km. hæð sé nú á milli 80 og 90 gráður.





Skrifa athugasemd