Janúar
Regína Hreinsdóttir
Regína Hreinsdóttir
Þjóðgarðsvörður
Mynd 1 af 2
1 2

22.01.2008 Janúar

Regína komin til starfa sem þjóðgarðsvörður

Nýr þjóðgarðsvörður, Hornfirðingurinn Regína Hreinsdóttir hefur tekið við störfum í Skaftafelli og flutti fjölskyldan í Hæðir, bústað þjóðgarðsvarðar 19.des. sl. Þetta eru frábærir dagar sem við erum búin að vera hér sagði Regína þegar fréttamaður vefsins spurði hana hvernig henni litist á að vera komin í nýja starfið.Þetta var óvenjulegt en mjög gaman að koma sér fyrir hér á nýjum stað og við erum búin að hreiðra vel um okkur. Yngri sonurinn er alsæll með leikskólann hér, eldri sonurinn er í háskólanum í Reykjavík og eiginmaðurinn er enn að vinna hjá fyrirtækinu Sviðsmyndum þar sem hann hefur unnið sl. 11 ár en ég vona að hann fái eitthvað að gera hér þegar fram líða stundir. Hann er ýmsu kunnugur hér var t.d. nokkur sumur við Jökulsárlón hjá Þorbjörgu og Fjölni, setti upp sýninguna á Þórbergssetri og eins Jöklasýninguna.

Ég er byrjuð að skoða og kynna mér reksturinn hér, skoða húsakynnin á staðnum og allt þetta eins hver staðan er í framkvæmdamálum hér í þjóðgarðinum. Það hafa verið ýmsar framkvæmdir hér  í þjóðgarðinum sl. sumar og mikið búið að gera.

Regína segir að búast megi við ýmsum breytingum  í  starfseminni í þjóðgarðinum þegar Vatnajökulsþjóðgarður  verður formlega til sem verður sennilega í apríl ?maí í vor og  þá kemur meiri stefnumótun fyrir öll svæðin. Auðvitað fær maður fullt af góðum hugmyndum þegar farið er um svæðið hér og allt skoðað og ég sé ýmislegt sem ég vildi gjarnan gera og það er af nógu að taka og spennandi verkefni framundan.

Töluvert var um gestakomur í þjóðgarðinn um jólin og áramótin, aðallega útlendingar og fóru sumir í gönguferðir  inn að Skaftafellsjökli og nokkrir lögðu leið sína inn í Morsárdal.

Núna  er  mikill snjór í Skaftafellsþjóðgarði og  náttúrufegurðin er ekki minni en á sumrin bara dálátið mikið öðruvísi  en í sól og sumaryl.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica