Gleymum ekki að gefa smáfuglunum
Nú þegar snjórinn hylur nær allt Ríki Vatnajökuls er mikilvægt að gleyma ekki að gefa smáfuglunum. Snjótittilingurinn er mjög áberandi þessa dagana og er því ekki úr vegi að fræðast aðeins um hann. Snjótittlingur er spörfugl af tittlingaætt, hann er kallaður sólskríkja á sumrin og snjótittlingur á veturna. Hann er næstum alhvítur á flugi séður að neðan og er auðþekktur á stórum, hvítum væng- og stélreitum. Snjótittlingurinn borðar orma, gras, korn og brauð. Á sumrin er karlfuglinn svartur á baki með svartar handflugfjaðrir og miðfjaðrir í stéli, en að öðru leyti snjóhvítur. Kvennfuglinn er grábrúnn með svörtum flikrum á höfði og baki. Á veturna er karlfuglinn ljósbrúnleitur á höfði og bringu og brúnn á baki með svörtum flikrum en kvennfuglinn og ungfuglar eru brúnni.
Goggur snjótittlingsins er keilulaga, svartur á sumrin en gulur á veturna, fætur eru svartir og augu dökk. Snjóttittlingurinn flýgur venjulega hátt og er flugið flöktandi. Stórir hópar af snjótittlingum á flugi geta minnt á snjófjúk. Hann er félagslyndur á veturnar en á sumrin eru pör og fjölskyldur saman. Hann er áberandi á veturna í stórum hópum og nálægt mannabyggðum.
Snjótittlingurinn syngur ýmist sitjandi á steini eða um leið og hann lætur sig falla svífandi til jarðar að lokum sveimandi biðilsflugi. Á veturnar gefur hann frá sér ómþýtt tíst. Snjótittlingur er algengur til fjalla og á hálendinu en strjáll á láglendi, nema við ströndina. Hann verpir í holum milli steina eða í grýttum og hrjóstrugum stöðum.
Hluti stofnsins hefur vetursetu í Skotlandi og grænlenskir fuglar eru fastagestir og vetrargestir hér.
Heimild m.a. Fuglar Íslands og Evrópu
Finnur Guðmundsson





Skrifa athugasemd