Málþing um íþrótta- og æskulýðsmál
Á sunnudaginn kl. 17:00 verður haldið málþing um íþrótta- og æskulýðsmál í Pakkhúsinu á Höfn, fyrir málþinginu standa Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar og Umf. Sindri. Á málþinginu greinir Matthildur Ásmundardóttir formaður æskulýðs- og tómstundaráðs frá hlutverki ráðsins, Ásgrímur Ingólfsson formaður stjórnar Sindra fjallar um hvað ungmennafélagið geri fyrir samfélagið, Jóhann Bergur Kiesel fulltrúi í Ungmennaráði Hornafjarðar fjallar um hvaða augum unga fólkið lítur íþrótta- og æskulýðsmál í sveitarfélaginu og Arna Ósk Harðardóttir segir frá því hvernig hún og hennar fjölskylda meðtekur íþrótta- og æskulýðsstarf á Hornafirði. Á málþinginu verða heiðraðir tveir Hornfirðingar fyrir gott og farsælt starf að íþrótta- og tómstundamálum til margra ára.
Þá verður líka skrifað undir samstarfssamning sveitarfélagsins við Umf. Sindra til þriggja ára sem felur í sér ýmsar breytingar og áherslur frá fyrri samningi. Ungt tónlistarfólk úr Tónskólanum leikur tónlist og boðið verður upp á kakó og kökur.
Stefán Ólafsson framkvstj. fræðslu- og félagssviðs stýrir málþinginu.
Fólk er hvatt til að koma til þings.





Skrifa athugasemd