Björgun Þórhalls Daníelssonar
Fyrr í vikunni sögðum við frá því þegar Þórhallur Daníelsson SF-71 fyrir 22 árum keyrði á Hafnarey SF36 með þeim afleiðingum að Hafnarey sökk og í framhaldi af því lagðist togarinn á hliðina á sandrif vestan Óslandsbryggju. Vefnum hafa borist upplýsingar frá Sveini Sighvatssyni um aðkomu og störf björgunarsveitarinnar á Höfn þann 13. jan.1986 við þennan atburð. Svein var þá formaður Björgunarfélagsins þegar þetta sögulega strand átti sér stað en hann sinnti formannsstarfinu í fjölda mörg ár. Björgunarsveitin var kölluð út um kl 17.30 og voru menn mættir á staðinn innan fárra mínútna. Byrjað var að kanna hvort allir skipverjar væru ekki komnir í land og reyndist svo vera og þá var næst að gera landgang um borð og skoða aðstæður í skipinu en kom þá í ljós að sjór var kominn í allt skipið nema brúna sem slapp að mestu. Fóru menn nú að skoða hvernig best væri að haga framkvæmdum til að ná skipinu á flot.
Fenginn var kafari, Vigfús Vigfússon, og safnað saman öllum dælum sem hægt var að ná um og hafist handa. Vigfús sýndi þarna mikinn dugnað við að loka hurðum lúgum og loftventlum við afar erfiðar aðstæður og var hans þáttur í björgunaraðgerðunum mjög stór. Veður fór heldur að skána þegar leið á kvöldið og um nóttina var byrjað að dæla sjó úr skipinu en með litlum árangri til að byrja með.
Um kvöldið var haldinn fundur með yfirmönnum togarans, fulltrúa trygginga, kafara, björgunarsveitarmönnum o.fl. þar sem farið var yfir málin og var Eiríki Jónssyni falin yfirumsjón verksins. Einn kafari að sunnan var nú kominn á staðinn til liðs við Vigfús og töldu menn að fyrst væri nauðsynlegt að reyna að loka slorlúgu og loftventli betur og þegar aðgerðir hófust aftur um kvöldið tókst köfurunum að loka betur og þétta á þeim stöðum þar sem sjór hafði komst inn í skipið. Fóru nú dælur að hafa betur og munaði þar mest um þegar fengin var loðnudælu frá Steinunni SF.
Um kl 4.30 á miðvikudagsmorgun fór skipið að rétta sig og lyftast og með aðstoðar Steinunnar SF og þungavinnuvélar í landi náðist að draga togarann á flot og koma honum á réttan kjöl og var hann kominn að bryggju um kl. 5.30 en höfðu þá björgunarsveitarmenn og aðrir sem að björguninni komu unnið sleitulaust á annan sólarhring að björgun Þórhalls Daníelssonar.
Það er af Hafnarey SF að segja að björgunarsveitin eignaðist skipið sem var mikið brotið og illa farið. Þegar tekist hafði að koma Hafnarey á flot var hafist handa að gera skipið sjófært og var mikil vinna við að þétta það. Seinna var farið með Hafnarey til Keflavíkur þar sem átti að selja skipið. Að sögn Eiríks Jónssonar gekk það dæmi ekki upp og vissi hann ekki hver hefðu orðið endanleg örlög skipsins en þar hefði það verið í mörg ár og hefði það líklega dagað þar uppi.





Skrifa athugasemd