Janúar
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Snjór á Höfn 15. janúar 2006
Snjór á Höfn . Björn Jónsson starfsmaður Sveitarfélagsins að moka af götum bæjarins.

16.01.2008 Janúar

Snjórinn er kominn

Aðfluttir Hornfirðingar brosa breitt í dag og njóta sín vel því jólasnjórinn er kominn þó á seinna fallinu sé. Jafnfallin ca. 15-20 sm. snjór er á Höfn, logn og hitastig rétt undir frostmarki. Snjórinn er flestum innfæddum Hornfirðingum ekkert ánægjuefni enda eru þeir ekki vanir slíku veðurfari og finnst snjórinn tilheyra öðrum landshlutum. Nokkur hálka hefur verið undanfarið og sést hefur til fólks á skautum en eins og staðan er núna eru snjóþoturnar betri kostur.

Ef veðurspá Veðurstofunnar rætist eru líkur á að snjórinn haldist hér næstu daga því spáð er suðaustan og sunnan 5-10 m/s og snjókoma eða él, en 10-15 í kvöld. Mun hægari suðvestan átt á morgun og stöku él, en slydda allra austast. Hiti um frostmark.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica