Janúar
Metfjöldi útskriftarnema
Á síðustu önn voru fleiri skráðir til náms í FAS en nokkru sinni áður. Þar munaði mest um nemendur í skipstjórnarnámi en við upphaf annar voru 130 manns skráðir í það nám. Þessi mikli fjöldi var einkum vegna þess að um síðustu áramót breyttist skipulag námsins og margir vildu ljúka þessu námi fyrir breytingarnar. Af þessum 130 sem byrjuðu í skipstjórnarnáminu útskrifuðust 95 og auk þess luku tveir námi af stúdentsbrautum.
Árið 2007 var metaðsókn í FAS og ef miðað er við nemendaígildi voru að meðaltali 140 nemendur við nám í FAS. Eitt nemendaígildi telst vera nemandi í sautján og hálfri einingu á önn.
www.fas.is





Skrifa athugasemd