Ótrúlegur atburður í Hornafjarðarhöfn fyrir 22 árum
Í upphafi árs hafa margir þann sið að rifja upp minnistæða atburði frá gamla árinu en við ætlum að fara aftur til ársins 1986 og rifja upp atburð sem gerðist í Hornafjarðarhöfn. Klukkan var rúmlega 17 mánudaginn 13. janúar, veðrið var leiðinlegt, rokhvasst 11-12 vindstig með enn hvassari hryðjum þegar verst var. Hornafjarðartogarinn Þórhallur Daníelsson sem var 299 rúmlesta skuttogara lá við bryggju og höfðu viðgerðarmenn að mestu lokið störfum um borð og þá var næst að gera skipið tilbúið veiða þegar veður lægði. Taka þurfti ís um borð og til þess þurfti að færa skipið spölkorn að ísbryggjunni. Vindur stóð þvert á tómt skipið og þegar landfestar voru leystar og bakka skyldi að ístækjunum hallast það mikið undan vindinum, það mikið að sjór flæddi inn um lúgugat sem var opið rétt fyrir ofan sjólínu. Sjórinn flæddi niður í vélarúmið yfir stjórnborð vélarinnar með þeim afleiðingum að vélin hrekkur í bakkgírinn og skipið siglir á fullri ferð þvert yfir höfnina að bátabryggjunni við Ósland og lendir þar á Hafnarey SF 36 sem var eikarbátur og lá við bryggjuna.
Hafnarey brotnaði mikið við áreksturinn og sökk nánast strax. Eftir að hafa gengið svona verklega frá Hafnareynni rekur togarann upp á sandeyrina innan við bryggjuna og leggst þar á hliðina. Skipverjar um borð í togaranum voru níu og sakaði engan þeirra.
Hermann Hansson sem þá var kaupfélagsstjóri KASK segir þennan atburð eitt af því sem engin hætta er á að gleymist. Mér varð auðvitað alveg hræðilega við þegar mér bárust fréttirnar en þá var ég að byrja fund með kartöflubændum hér úr sveitunum en af þeim fundi varð að sjálfsögðu ekki þann daginn.
Hermann segir að þegar hugsað er til baka þá er í fyrsta lagi alveg ótrúlegt að þetta skyldi geta gerst hér í Hornafjarðarhöfn , í öðru lagi var mikið lán að ekki skyldi verða slys á fólki og í þriðja lagi þá hafi björgunarsveitin hér unnið mjög gott starf við að rétta skipið af og koma því á flot.
Eftir bráðabirgðaviðgerð var Þórhallur Daníelsson dreginn til Njarðvíkur þar sem gert var við hann og tók viðgerð um 3 mánuði.
Togarinn var gerður út frá Höfn til ársins 1992 en þá var hann seldur.




Skrifa athugasemd