Janúar
Krossey SF
Krossey SF
Krossey SF

09.01.2008 Janúar

Metár í síldinni hjá Skinney-Þinganesi

Síldveiðar í haust gengu með afbrigðum vel, þótt langt hafi verið að sækja síldina, en eins og kunnugt er hefur hún haldið sig í Grundarfirði. Skipin þrjú, Jóna Eðvalds, Krossey og Áskell hafa veitt síldina jafnt og þétt þannig að varla hefur fallið úr dagur í framleiðslunni í landi og má segja að síldarvinnsla hafi verið stanlaust í gangi frá byrjun október fram yfir miðjan desember. Unnið hefur verið á 12 tíma vöktum við vinnsluna. Á árinu 2007 voru fryst yfir tíu þúsund tonn af síldarafurðum hjá félaginu, sem er metár í síldarfrystingu. Á árinu var tekið á móti yfir 30 þúsund tonnum af Íslandssíld til manneldisvinnslu hjá félaginu, en aldrei hefur meira af Íslandssíld verið landað til vinnslu á Höfn á einu ári. Auk þessa hefur talsvert af síld borist til fiskimjölsverksmiðjunnar á Höfn þannig að heildaraflinn er mun meiri. Skipin fóru til síldveiða á ný í byrjun árs og hefur gengið vel sem af er.

Gert er ráð fyirir að síldveiðum verði lokið um miðjan janúar.

www.sth.is

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica