Mikill áhugi á lausn á bridgeþraut Baldurs
Eins og lesendur vefsins muna eflaust eftir þá var Baldur Kristjánsson prestur, frjálslyndur jafnaðarmaður og síðast en ekki síst bridgespilari jólagestur hjá okkur hér á vefnum í desember. Í stað þess að koma með uppskrift af einhverju góðgæti kom hann með þraut, eða eins og hann ritaði "Ég kann engar uppskriftir. Stundum þegar ég hef verið í makaleit hef ég þóst vera góður í eldhúsinu en í raun og veru á ég ekkert erindi þangað og gæti fyrr flogið fjaðralaus en búið til góða köku. En ég kann að spila brids og læt því fylgja með góða bridsuppskrift þ.e. segja bridsþraut. Hún kemur sér líka vel fyrir þá sem kynnu að vera einir." Allnokkrir hafa spurt um lausnina og hér kemur þrautin ásamt svari frá Baldri
Þrautin var:
Norður
ÁK932
K4
ÁDG10
63
Suður
G4
Á763
K76
ÁD92
Þú ert í suður og lélegur makker þinn hefur komið þér í 6 grönd. Vestur kemur út með tígul þrist. Austur lætur fimmuna. Hvernig er skást að spila? Hver er áætlunin?
Þetta tæknipróf er frá Edwin B. Kantar.
Og hér kemur lausnin.
Besta leiðin er að taka tígulinn í blindum og taka laufsvíninguna. Ef svíningin gengur ekki þá verður að spila upp á fimm slagi á spaða með því að spila gosanum o g svína síðan níunni, í raun og veru að spila vestur upp á D10x.
Takist lauf svíningin hins vegar er aðeins þörf fyrir fjóra spaðaslagi og þá er best að spila lágu að gosanum. Ef gosinn heldur ekki er best að toppa spaðann og vona að tían detti.
Tækniprófið er að athuga hvort þú spilari góður hafðir vit á að fara í laufið fyrst til þess að athuga hvort þú þyrftir kraftaverk í spaðanum (fimm slagi) eða aðeins smá gæfu (fjóra slagi).
Svo þakkar Baldur fyrir gáfulegar fyrirspurnir og óskar hann bridsmönnum gæfu og gengis á árinu.





Skrifa athugasemd