Economuseum Northern Europe og NEED, Northern Environment Education Development eiga það sameiginlegt að vera verkefni sem hafa fengið fjárhagslegan stuðning frá Norðurslóðaáætlun Evrópu þar sem Hornfirskir aðilar í Nýheimum eru þátttakendur í og jafnframt leiða verkefnin fyrir íslands hönd. Heildarstyrkur til verkefnana er 260 miljónir þar af er Hornfirski hlutinn 50 miljónir króna. Verkefnið Economuseum Northern Europe er samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Færeyja, Norður Írlands, Írlands og Kanada þar sem heildarverkefniskostnaður verkefnisins er 149,8 milljónir og þar af hlutur Íslands 23 milljónir eða 15,4%. Það eru Fruman í Nýheimum sem leiðir verkefnið og Þekkingarnet Austurlands er samstarfsaðili í verkefninu. Markmið verkefnisins er að hagnýta sér reynslu og þekkingu sem skapast hefur í árangursríku sambærilegu verkefni frá Kanada. Economuseum verkefnið sameinar menningu, handverk og ferðamennsku til að mynda grundvöll fyrir handverksfólk sem nota að stærstum hluta aldagamlar aðferðir til að skapa ný störf. Verkefnið aðstoðar við þróun viðskiptahugmynda, sýningahald ásamt kennslu og þjálfun ungs fólks.
Lesa meira