Janúar

Hali

Burstabærinn á Hala endurbyggður - 31.01.2008 Janúar

Byggingarframkvæmdir eru hafnar við gamla burstabæinn á Hala. Búið er að rífa hluta hússin þ.e. tvær af fimm burstum vestanmegin ásamt bílskúr og byrjað á nýju húsi sem verður á tveim hæðum 100 fm.hvor hæð og burstirnar verða þrjár. Það er Þórbergur Torfason sem stendur fyrir þessum framkvæmdum og hefur fengið Mikael ehf. til að annast uppsteypu á húsinu síðan taka heimamenn við. Að sögn Fjölnis Torfasonar á Hala vonast hann til að húsið verði fokhelt í mars og tilbúið fyrir sumarið og reiknar hann með að leigja nýja bæinn af bróður sínum fyrir ferðaþjónustuna en þar verða 9 tveggja manna herbergi. Lesa meira
 
Mikael

Framkvæmdir við sundlaugabyggingu hafin - 30.01.2008 Janúar

Framkvæmdir við sundlaugarbygginguna hér á Höfn eru komnar á fullt og eru starfsmenn Mikaels ehf. þessa dagana að vinna við sundlaugina og hefst steypuvinna strax þegar hlýnar í veðri, þá eru sökklar fyrir þjónustuhúsið tilbúnir. Við ætlum að vera snöggir að þessu segir Gunnar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Mikaels ehf. og vera búnir með uppsteypu snemma í vor og gera allt tilbúið fyrir innivinnu í húsinu. Gunnar reiknar með að verða með um 10 manns í vinnu við bygginguna í sumar ásamt öðrum verktökum sem að byggingunni koma. Undanfarin ár hefur Mikael ehf. verið með verkefni víða um land einkum við brúarsmíði nú síðast skammt frá Skálholti. Gunnar fagnar því að fá næg verkefni hér á heimaslóðum og segir mikið borgandi fyrir að geta farið að vinna hér heima eftir langa fjarveru. Lesa meira
 
Grunnskólanemendur í FAS

Grunnskólanemendur í FAS - 30.01.2008 Janúar

Á þessari önn stunda vel á þriðja tug nemenda úr Grunnskóla Hornafjarðar nám í Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu. Þeir eru skráðir í átta mismunandi áfanga sem eru; bókfærsla, danska, enska, ferðamálafræði, grunnteikning, náttúrufræði, spænska og þýska. Fyrirkomulag námsins er mismunandi eftir áföngum. Í bókfærslu og þýsku er um að ræða séráfanga sem kenndir eru í FAS. Kennsla í grunnteikningu og náttúrufræði fer fram í grunnskólanum en prófað er í FAS. Í öðrum áföngum blandast grunnskólanemendur inn í hópana í FAS. Því er óhætt að segja að nemendur í 10. bekk komi víða við í FAS. Nú er komin mikil reynsla á samstarf skólanna þar grunnskólanemendum gefst tækifæri á að hefja nám í framhaldsskóla samhliða námi í grunnskóla. Lesa meira
 
Lækjarhús

Gott skauta- og sleðafæri í Lækjarhúsum - 30.01.2008 Janúar

Óvenju mikið hefur verið um komur ferðamanna í vetur á þá gististaði sem eru í alfaraleið og vonandi er þetta byrjun á alvöru vetrarferðamennsku hér í ríki Vatnajökuls.Vefurinn hafði samband Laufeyju Guðmundsdóttur ferðaþjónustubónda í Lækjarhúsum í Suðursveit og spurðum hana frétta. Hér er allt í rólegheitum yfir veturinn enda dálítið frá þjóðbrautinni sagði Laufey, en það kemur fyrir að einn og einn ferðalangur detti hér inn. Það má segja að veðrið hefur leikið við okkur hér í skjóli fjallanna og ekki komið nein illviðri eins og víða um land. Hér hefur viðrað vel til útivistar og bæði verið skautasvell og sleðafæri og það er mikið um að fólk bregði sér í sveitirnar til að komast á góð skautasvell og t.d er gott svell hér rétt við veginn. Hér er óskaplega fallegt vetrarríki þessa dagana þó ekki sé mikill snjór og gott til útivistar. Lesa meira
 
Kristófer Ögmundsson

Fékk svar frá sendanda flöskuskeytsins - 30.01.2008 Janúar

Við sögðum frá því fyrir nokkrum dögum þegar Kristofer Ögmundsson fann flöskuskeyti á Austurfjörum. En í því var bréf og nokkrir kanadískir smápeningar frá 2. vélstjóra á Kanadísku strandgæsluskipi. Flöskunni henti hann í sjóinn við Grand-banks við Nýfundnaland og bað hann finnandann að senda sér bréf með tilheyrandi upplýsingum og það gerði Kristofer. Svar barst um hæl í tölvupósti. Eigandi flöskuskeytisins heitir Albert White, giftur, á tvö uppkomin börn og býr rétt hjá höfuðborg Nýfundnalandis St. John's. Í bréfinu undrast Albert á því hversu langt flöskuskeytið fór frá því hann setti það í sjóinn. Lesa meira
 
Skautasvell

Slökkvilið á Hornafirði gerir skautasvell fyrir Hafnarbúa - 29.01.2008 Janúar

Nú hefur Slökkviliðið á Hornafirði sprautað vatni á svellið sem er við Hossabitahaga til þess að nýta frostið sem nú er og er spáð næstu daga. Með þessu er þeir að búa til flott skautasvell á staðnum. Þetta svæði er kjörið fyrir útivistar og tilvalið að skella sér á skauta. Svæðið hefur verið mjög vinsælt sem skautasvæði en þar sem svell hefur verið mjög ójafnt ekki gott að skauta á því tók Slökkviliðið því til sinna ráða, mætti á svæðið með tvo tankbíla sem samtals taka 24 þúsund lítra af vatni. Nú er um að gera að mæta á skauta þegar frostið hefur lagað svellið og fyrir þá sem enn hafa ekki farið á skauta þá er bara að dusta rykið af skautunum og drífa sig. Lesa meira
 
Urðun sorps

Opnun tilboða í urðun úrgangs í sveitarfélaginu - 28.01.2008 Janúar

Fyrir síðustu áranót auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir tilboðum í urðun úrgangi á urðunarsvæðinu í Lóni og bárust fjögur tilboð í verkið. Þeir aðilar sem buðu í verkið voru: Rósaberg ehf 4,75 kr/kg., Funi ehf 5,00 kr/kg., Gröfuþjónusta Olgeirs ehf 7,45 kr/kg og Papafjörður ehf 5,75 kr/kg. (upphæðir án vsk). Starfsmönnum bæjarins var falið að fara yfir tilboðin og leggja fyrir næsta fund. Hér er einungis um urðun úrgangs að ræða en það verk hefur Papafjörður ehf. séð um í nokkur ár. Urðunarsvæðið í Lóni er í landi Syðri-Fjarðar og er leigusamningur bæjarfélagsins á því til ársins 2030. Lesa meira
 
lego6

Eiríkur Hansson og ísjakarnir í Hafnarskóla Hornfirðingur ársins - 28.01.2008 Janúar

Á Þorrablóti Hafnarbúa var um helgina var tilkynnt um hver væri Hornfirðingar ársins 2007 og að þessu sinni var það Eiríkur Hansson og ísjakarnir í Hafnarskóla sem hlutu titilinn. Eiríkur hefur unnið gríðarlegt frumkvöðlastarf í gegnum tíðina í Hafnarskóla og meðal annars leiddi hann Ísjakanna, lið Hafnarskóla til sigurs í Legó hönnunarkeppninni sem haldin var í Reykjavík í haust. Með því fengu Ísjakarnir einnig rétt til þátttöku á stórmót First Lego League og eru á leið til Bandaríkjanna með vorinu til þess að taka þátt í því. Lesa meira
 
Fegurð í Austur-Skaftafellssýslu

Nám í ferðaþjónustu fyrir nemendur FAS - 25.01.2008 Janúar

Nú hefur farið af stað samvinnuverkefni Framhaldsskólans í Austur Skaftafellssýslu og IÐUNNAR um nám í ferðaþjónustu fyrir nemendur skólans. Fyrstu námslotunni er lokið og voru móttökurnar frábærar. Fimm staðbundnar lotur verða haldnar og fara fram á FAS og Hótel Höfn, þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Nemendahópurinn var skemmtilegur og áhugsamur um ferðaþjónustu og gera miklar væntingar til áfangans. Þau hafa flest öll unnið við ferðaþjónustu og vilja styrkja sig í starfi. Áfanginn verður kenndur í dreifnámi. Námskeiðið er haldið á vegum Sæmundar fróða, rekstrarfélag í eigu IÐUNNAR fræðsluseturs og Menntaskólans í Kópavogi. Kennarar eru Margrét Sigurbjörnsdóttir sem hefur umsjón með hreinlætisfræði með sérstaka áherslu á herbergisþrif og eldhús. Lesa meira
 
Flöskuskeyti

Fann flöskuskeyti á Austurfjörum - 23.01.2008 Janúar

Fjöruferðir hafa löngum haft aðdráttarafl fyrir bæði fyrir börn og fullorðna og alltaf er von um að finna þar eitthvað óvænt sem sjórinn hefur skolað á land. Heppnin var með Kristófer Ögmundssyni á Höfn þegar hann var á Austurfjörum fyrir nokkrum dögum og fann flösku sem var kirfilega lokuð og eitthvað í plastpoka í henni. Í ljós kom að þetta var bréf og nokkrir kanadískir smápeningar frá 2. vélstjóra á kanadísku strandgæsluskipi. Flöskunni hendir hann í sjóinn við Grand-banks við Nýfundnaland og biður hann finnandann að senda sér bréf með tilheyrandi upplýsingum. Bréfið var ekki dagsett og því ekki vitað hve lengi það hefur verið að berast hingað. Lesa meira
 
Björn Arnarsson

Horfðu til himins - 22.01.2008 Janúar

himins |nl|20.01.2008 |nl|Hljómsveitin Ný dönsk söng "Horfðu til himins" og átti sú laglína mjög vel við í dag þegar himinn skartaði í senn glitskýum og rauðum himni þegar sólin var að setjast seinni partinn. Einar Sveinbjörnss hjá Veðurstofunni segir að glitský, einnig nefnd perlumóðurský eða ísský myndist í heiðhvolfinu gjarnan í um 25 km. hæð. Venjuleg ský eins og við þekkjum þau helst ná sjaldnast á okkar slóðum upp fyrir 12 km hæð eða upp að endimörkum veðrahvolfsins við veðrahvörfin. Glitskýin samanstanda af örsmáum ískristöllum, sem myndast við þegar sá litli raki sem til staðar er þetta hátt upp nær að þéttast við sérstakar aðstæður. Glitskýja er helst að vænta um miðjan vetur og eftir sólarlag Lesa meira
 
Regína Hreinsdóttir

Regína komin til starfa sem þjóðgarðsvörður - 22.01.2008 Janúar

Nýr þjóðgarðsvörður, Hornfirðingurinn Regína Hreinsdóttir hefur tekið við störfum í Skaftafelli og flutti fjölskyldan í Hæðir, bústað þjóðgarðsvarðar 19.des. sl. Þetta eru frábærir dagar sem við erum búin að vera hér sagði Regína þegar fréttamaður vefsins spurði hana hvernig henni litist á að vera komin í nýja starfið.Þetta var óvenjulegt en mjög gaman að koma sér fyrir hér á nýjum stað og við erum búin að hreiðra vel um okkur. Yngri sonurinn er alsæll með leikskólann hér, eldri sonurinn er í háskólanum í Reykjavík og eiginmaðurinn er enn að vinna hjá fyrirtækinu Sviðsmyndum þar sem hann hefur unnið sl. 11 ár en ég vona að hann fái eitthvað að gera hér þegar fram líða stundir. Hann er ýmsu kunnugur hér var t.d. nokkur sumur við Jökulsárlón hjá Þorbjörgu og Fjölni, setti upp sýninguna á Þórbergssetri og eins Jöklasýninguna. Lesa meira
 
Glitský 20. janúar 2008

Horfðu til himins - 20.01.2008 Janúar

Hljómsveitin Ný dönsk söng "Horfðu til himins" og átti sú laglína mjög vel við í dag þegar himinn skartaði í senn glitskýum og rauðum himni þegar sólin var að setjast seinni partinn. Einar Sveinbjörnsson hjá Veðurstofunni segir að glitský, einnig nefnd perlumóðurský eða ísský myndist í heiðhvolfinu gjarnan í um 25 km. hæð. Venjuleg ský eins og við þekkjum þau helst ná sjaldnast á okkar slóðum upp fyrir 12 km hæð eða upp að endimörkum veðrahvolfsins við veðrahvörfin. Glitskýin samanstanda af örsmáum ískristöllum, sem myndast við þegar sá litli raki sem til staðar er þetta hátt upp nær að þéttast við sérstakar aðstæður. Glitskýja er helst að vænta um miðjan vetur og eftir sólarlag og fyrir sólaruppkomu geta þau verið böðuð sólskini, þótt aldimmt sé við jörð. Tilurð þeirra tengist myndun mikils kuldahvirfils yfir norðurpólnum sem nær hámarki í desember og janúar. Lesa meira
 
Leið 1_2_3

Reynir hefur fulla trú á samstöðu heimamanna - 20.01.2008 Janúar

Eins og fram kom í viðtali við Kjartan Hreinsson hér á fréttavefnum eru hestamenn á Hornafirði mjög óhressir með þá hugmynd Vegagerðarinnar að nýi vegurinn (merkt leið 1) yfir Hornafjarðarfljót þjóðvegur eitt verði lagður yfir enda hesta-íþróttavallarins og eyðileggi þá íþróttaaðstöðu sem þar er búið að byggja upp. Vefurinn hafði samband við Reyni Arnarson formann Bæjarráðs og spurði um hans álit á þessu. Ég get alveg verið Kjartani sammála með þessi ummæli hans um áhrif vegna á lagningu Fljótavegarins verði leið eitt fyrir valinu segir Reynir, mér líst illa á þetta en vil þó bíða með yfirlýsingar þar til eftir fund með Vegagerðinni sem haldinn verður hér í byrjun febrúar. Á þessum fundi ætlar Vegagerðin að opinbera sínar tillögur þó við vitum nokkurn vegin hug þeirra en þeir hafa ,eftir síðasta fund hér, fengið athugasemdir héðan og ég er aðeins að gæla við þá hugmynd að þeir taki eitthvert tillit til þeirra. Lesa meira
 
Snjótittlingur

Gleymum ekki að gefa smáfuglunum - 19.01.2008 Janúar

Nú þegar snjórinn hylur nær allt Ríki Vatnajökuls er mikilvægt að gleyma ekki að gefa smáfuglunum. Snjótittilingurinn er mjög áberandi þessa dagana og er því ekki úr vegi að fræðast aðeins um hann. Snjótittlingur er spörfugl af tittlingaætt, hann er kallaður sólskríkja á sumrin og snjótittlingur á veturna. Hann er næstum alhvítur á flugi séður að neðan og er auðþekktur á stórum, hvítum væng- og stélreitum. Snjótittlingurinn borðar orma, gras, korn og brauð. Á sumrin er karlfuglinn svartur á baki með svartar handflugfjaðrir og miðfjaðrir í stéli, en að öðru leyti snjóhvítur. Kvennfuglinn er grábrúnn með svörtum flikrum á höfði og baki. Á veturna er karlfuglinn ljósbrúnleitur á höfði og bringu og brúnn á baki með svörtum flikrum en kvennfuglinn og ungfuglar eru brúnni. Lesa meira
 
Sænbjörg VE 56

Að bjarga allri áhöfninni 14 manns í land var ólýsanleg - 19.01.2008 Janúar

Í nýlegu viðtali við Svein Sighvatsson fyrrum formann Björgunarfélags Hornafjarðar bar ýmislegt á góma um starfsemi félagsins og útköll og þar á meðal strand Sæbjargar VE-56 við Stokksnes 1984. Það er einhver eftirminnilegasti björgunarleiðangur sem ég man eftir segir Sveinn og sú góða tilfinningin þegar búið var að bjarga allri áhöfninni 14 manns í land var ólýsanleg. Það var laust fyrir kl. 5 mánudaginn 17.des. að hringt var frá Slysavarnarfélagi Íslands og tilkynnt að Sæbjörg VE-56 eigi í erfiðleikum um 1,5 sm. út af Stokksnesi í slæmu veðri, skipið væri með bilaða vél og hefði Erling KE-45 komið taug á milli skipanna. Ákveðið var að kalla saman björgunarsveitina og yrði hún í viðbragðsstöðu ef á þyrfti að halda og einnig yrði strax haft samband við loftskeytastöðina á Höfn. Í því að haft var samband við loftskeytastöðina og hún hafði staðfest staðsetningu skipanna kom beiðni frá Sæbjörgu um að kalla út björgunarsveitina. Lesa meira
 
Fá hlaupaæfingu 4.flokks kvenna fyrir Lónshlaupið

Málþing um íþrótta- og æskulýðsmál - 18.01.2008 Janúar

Á sunnudaginn kl. 17:00 verður haldið málþing um íþrótta- og æskulýðsmál í Pakkhúsinu á Höfn, fyrir málþinginu standa Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar og Umf. Sindri. Á málþinginu greinir Matthildur Ásmundardóttir formaður æskulýðs- og tómstundaráðs frá hlutverki ráðsins, Ásgrímur Ingólfsson formaður stjórnar Sindra fjallar um hvað ungmennafélagið geri fyrir samfélagið, Jóhann Bergur Kiesel fulltrúi í Ungmennaráði Hornafjarðar fjallar um hvaða augum unga fólkið lítur íþrótta- og æskulýðsmál í sveitarfélaginu og Arna Ósk Harðardóttir segir frá því hvernig hún og hennar fjölskylda meðtekur íþrótta- og æskulýðsstarf á Hornafirði. Á málþinginu verða heiðraðir tveir Hornfirðingar fyrir gott og farsælt starf að íþrótta- og tómstundamálum til margra ára. Lesa meira
 
Sveinn Sighvatsson

Björgun Þórhalls Daníelssonar - 18.01.2008 Janúar

Fyrr í vikunni sögðum við frá því þegar Þórhallur Daníelsson SF-71 fyrir 22 árum keyrði á Hafnarey SF36 með þeim afleiðingum að Hafnarey sökk og í framhaldi af því lagðist togarinn á hliðina á sandrif vestan Óslandsbryggju. Vefnum hafa borist upplýsingar frá Sveini Sighvatssyni um aðkomu og störf björgunarsveitarinnar á Höfn þann 13. jan.1986 við þennan atburð. Svein var þá formaður Björgunarfélagsins þegar þetta sögulega strand átti sér stað en hann sinnti formannsstarfinu í fjölda mörg ár. Björgunarsveitin var kölluð út um kl 17.30 og voru menn mættir á staðinn innan fárra mínútna. Byrjað var að kanna hvort allir skipverjar væru ekki komnir í land og reyndist svo vera og þá var næst að gera landgang um borð og skoða aðstæður í skipinu en kom þá í ljós að sjór var kominn í allt skipið nema brúna sem slapp að mestu. Fóru menn nú að skoða hvernig best væri að haga framkvæmdum til að ná skipinu á flot. Lesa meira
 
Fyrsta skóflustungan að reiðhöll

1.520 fermetra reiðhöll við Stekkhól - 17.01.2008 Janúar

Nú er allt að verða tilbúið til að hægt verði að hefjast handa við að reisa reiðhöllina við Stekkhól í Nesjum, undirstöður tilbúnar og klæðning hússins á leiðinni og að sögn Kjartans Hreinssonar mun vinna við það hefjast strax og vel viðrar. Húsið sem endanlega varð fyrir valinu er stálgrindarhús klætt samlokueiningum og er heildarstærð þess 1.520 fermetrar. Kjartan vildi ekki spá um verklok við húsið en hann vonast til að hægt verði að fara að nota það svona á vordögunum þó ekki verði allt fullbúið. Verktaki er 37 ehf. en fyrir því stendur Steinar Sigurgeirsson vélstjóri á Hvanney og sér hann um allar framkvæmdir við bygginguna. Lesa meira
 
Snjór á Höfn 15. janúar 2006

Snjórinn er kominn - 16.01.2008 Janúar

Aðfluttir Hornfirðingar brosa breitt í dag og njóta sín vel því jólasnjórinn er kominn þó á seinna fallinu sé. Jafnfallin ca. 15-20 sm. snjór er á Höfn, logn og hitastig rétt undir frostmarki. Snjórinn er flestum innfæddum Hornfirðingum ekkert ánægjuefni enda eru þeir ekki vanir slíku veðurfari og finnst snjórinn tilheyra öðrum landshlutum. Nokkur hálka hefur verið undanfarið og sést hefur til fólks á skautum en eins og staðan er núna eru snjóþoturnar betri kostur. Lesa meira
 
FAS

Metfjöldi útskriftarnema - 14.01.2008 Janúar

Á síðustu önn voru fleiri skráðir til náms í FAS en nokkru sinni áður. Þar munaði mest um nemendur í skipstjórnarnámi en við upphaf annar voru 130 manns skráðir í það nám. Þessi mikli fjöldi var einkum vegna þess að um síðustu áramót breyttist skipulag námsins og margir vildu ljúka þessu námi fyrir breytingarnar. Af þessum 130 sem byrjuðu í skipstjórnarnáminu útskrifuðust 95 og auk þess luku tveir námi af stúdentsbrautum. Lesa meira
 
Þórhallur Daníelsson SF 71

Ótrúlegur atburður í Hornafjarðarhöfn fyrir 22 árum - 13.01.2008 Janúar

Í upphafi árs hafa margir þann sið að rifja upp minnistæða atburði frá gamla árinu en við ætlum að fara aftur til ársins 1986 og rifja upp atburð sem gerðist í Hornafjarðarhöfn. Klukkan var rúmlega 17 mánudaginn 13. janúar, veðrið var leiðinlegt, rokhvasst 11-12 vindstig með enn hvassari hryðjum þegar verst var. Hornafjarðartogarinn Þórhallur Daníelsson sem var 299 rúmlesta skuttogara lá við bryggju og höfðu viðgerðarmenn að mestu lokið störfum um borð og þá var næst að gera skipið tilbúið veiða þegar veður lægði. Taka þurfti ís um borð og til þess þurfti að færa skipið spölkorn að ísbryggjunni. Vindur stóð þvert á tómt skipið og þegar landfestar voru leystar og bakka skyldi að ístækjunum hallast það mikið undan vindinum, það mikið að sjór flæddi inn um lúgugat sem var opið rétt fyrir ofan sjólínu. Sjórinn flæddi niður í vélarúmið yfir stjórnborð vélarinnar með þeim afleiðingum að vélin hrekkur í bakkgírinn og skipið siglir á fullri ferð þvert yfir höfnina að bátabryggjunni við Ósland og lendir þar á Hafnarey SF 36 sem var eikarbátur og lá við bryggjuna. Lesa meira
 
Handverk

Nýheimar leiða tvö verkefni í Norðurslóðaáætlun Evrópu - 11.01.2008 Janúar

Economuseum Northern Europe og NEED, Northern Environment Education Development eiga það sameiginlegt að vera verkefni sem hafa fengið fjárhagslegan stuðning frá Norðurslóðaáætlun Evrópu þar sem Hornfirskir aðilar í Nýheimum eru þátttakendur í og jafnframt leiða verkefnin fyrir íslands hönd. Heildarstyrkur til verkefnana er 260 miljónir þar af er Hornfirski hlutinn 50 miljónir króna. Verkefnið Economuseum Northern Europe er samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Færeyja, Norður Írlands, Írlands og Kanada þar sem heildarverkefniskostnaður verkefnisins er 149,8 milljónir og þar af hlutur Íslands 23 milljónir eða 15,4%. Það eru Fruman í Nýheimum sem leiðir verkefnið og Þekkingarnet Austurlands er samstarfsaðili í verkefninu. Markmið verkefnisins er að hagnýta sér reynslu og þekkingu sem skapast hefur í árangursríku sambærilegu verkefni frá Kanada. Economuseum verkefnið sameinar menningu, handverk og ferðamennsku til að mynda grundvöll fyrir handverksfólk sem nota að stærstum hluta aldagamlar aðferðir til að skapa ný störf. Verkefnið aðstoðar við þróun viðskiptahugmynda, sýningahald ásamt kennslu og þjálfun ungs fólks. Lesa meira
 
Sigursteinn Haukur Reynisson

Sigursteinn hlaut styrk fyrir framúrskarandi árangur - 11.01.2008 Janúar

Úthlutað var úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents við hátíðlega athöfn í Skólabæ fimmtudaginn 21. desember. Styrkinn hlaut að þessu sinni Sigursteinn Haukur Reynisson, nemandi á þriðja ári í rafmagns- og tölvuverkfræði. Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi í verkfræðideild HÍ. Sigursteinn Haukur lauk námi í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2000 og stúdentsprófi frá Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu vorið 2004 þar sem hann var dúx skólans. Foreldrar Sigursteins Hauks eru þau Katrín Lilja Haraldsdóttir og Reynir Sigursteinsson. Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar HÍ, á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952. |nl| Lesa meira
 
Guðni Ágústsson og Bjarni Harðar

Guðni og Bjarni í heimsókn - 10.01.2008 Janúar

Í dag hafa þeir Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson þingmenn Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi boðað til súpufundar á Hótel Höfn, í hádeginu frá kl. 12-13 og í félagsheimilinu Hofgarði í Öræfum kl. 15:30. Það eru allir velkomnir á fundina og um að gera að mæta og hýða á þá og nota tækifærið og skjóta á þá spurningum. Þeir munu síðan halda í Kirkjubæjarklaustur þar sem þeir ætla að funda á Systrakaffi í kvöld. Lesa meira
 
Krossey SF

Metár í síldinni hjá Skinney-Þinganesi - 09.01.2008 Janúar

Síldveiðar í haust gengu með afbrigðum vel, þótt langt hafi verið að sækja síldina, en eins og kunnugt er hefur hún haldið sig í Grundarfirði. Skipin þrjú, Jóna Eðvalds, Krossey og Áskell hafa veitt síldina jafnt og þétt þannig að varla hefur fallið úr dagur í framleiðslunni í landi og má segja að síldarvinnsla hafi verið stanlaust í gangi frá byrjun október fram yfir miðjan desember. Unnið hefur verið á 12 tíma vöktum við vinnsluna. Á árinu 2007 voru fryst yfir tíu þúsund tonn af síldarafurðum hjá félaginu, sem er metár í síldarfrystingu. Á árinu var tekið á móti yfir 30 þúsund tonnum af Íslandssíld til manneldisvinnslu hjá félaginu, en aldrei hefur meira af Íslandssíld verið landað til vinnslu á Höfn á einu ári. Auk þessa hefur talsvert af síld borist til fiskimjölsverksmiðjunnar á Höfn þannig að heildaraflinn er mun meiri. Skipin fóru til síldveiða á ný í byrjun árs og hefur gengið vel sem af er. Lesa meira
 
Ásgeir Örn Þorsteinsson

Flugfélagið Ernir eykur farþegastreymi til Hornafjarðar milli ára - 04.01.2008 Janúar

Mikil aukning hefur orðið á farþegum milli ára hingað til Hornafjarðar hjá Flugfélaginu Erni en einnig hefur orðið aukning hjá þeim á farþegum sem fljúga til Sauðárkróks og má jafnvel sjá aukninguna mun lengra aftur í tímann. Ásgeir Örn Þorsteinsson sölu og markaðstjóri hjá flugfélaginu segir að farþegum á Hornafjörð hafi fjölgað frá árinu 2006 um allt að 8% og ef tekið er mið af aukningu milli áranna 2005 og 2007 er aukningin um 12%. Fjölgun farþega til Sauðárkróks hefur verið mjög góð eða um 11%. Einnig má sjá aukningu af farþegum til Sauðárkróks lengra aftur í tímann. Forsvarsmenn Ernis eru mjög bjartsýnir á framhaldið og telja að farþegum eigi eftir að fjölga áfram á alla staði. Hornfirðingar eru almennt mjög ánægðir með þjónustu flugfélagsins og er það mál manna að það sé hægt að stilla klukkuna eftir fluginu hjá þeim, svo nákvæmir eru þeir á tímasetningum. Eins er afar sjaldgæft að það þurfi að fella niður flug. Lesa meira
 
Baldur Kristjánsson

Mikill áhugi á lausn á bridgeþraut Baldurs - 02.01.2008 Janúar

Eins og lesendur vefsins muna eflaust eftir þá var Baldur Kristjánsson prestur, frjálslyndur jafnaðarmaður og síðast en ekki síst bridgespilari jólagestur hjá okkur hér á vefnum í desember. Í stað þess að koma með uppskrift af einhverju góðgæti kom hann með þraut, eða eins og hann ritaði "Ég kann engar uppskriftir. Stundum þegar ég hef verið í makaleit hef ég þóst vera góður í eldhúsinu en í raun og veru á ég ekkert erindi þangað og gæti fyrr flogið fjaðralaus en búið til góða köku. En ég kann að spila brids og læt því fylgja með góða bridsuppskrift þ.e. segja bridsþraut. Hún kemur sér líka vel fyrir þá sem kynnu að vera einir." Allnokkrir hafa spurt um lausnina og hér kemur þrautin ásamt svari frá Baldri Lesa meira
 
Guðmundur Heiðar Gunnarsson

Matarferðamennska verði efld á Suðausturlandi - 02.01.2008 Janúar

Matís (Matvælarannsóknir Íslands) vill efla matarferðamennsku á Suðausturlandi og óskar fyrirtækið eftir samstarfi við áhugasama aðila á svæðinu sem búa yfir góðri hugmynd að staðbundinni matvöru. Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnastjóri Matís á Höfn, segir að markmiðið með verkefninu sé að efla atvinnulíf og auka framlegð með frekari vinnslu staðbundinna afurða á svæðinu. “Við leitum að samstarfsaðilum í matarferðarmennsku. Verkefnið felur í sér þróun á vörum úr staðbundnu hráefni sem unnt er að selja til ferðamanna á svæðinu.” Lesa meira
 
Birthday-twins-project

Hvernig væri líf mitt ef ég hefði fæðst á öðrum stað í heiminum? - 02.01.2008 Janúar

Belgíska ríkissjónvarpið leitar nú að einstaklingum víða um heim sem eiga það sameiginlegt að hafa fæðst á sama degi. Annelore De Donder, sem starfar fyrir kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Woestijnvis ( Desert Fish), hafði samband við Hornafjörð.is og bað um að þessari frétt yrði komið á framfæri hér á Íslandi. Woestijnvis starfar eingöngu fyrir belgíska ríkissjónvarpið og hefur hlotið fjölda viðurkenninga (sjá meðfylgjandi tengla á vefsíður). Nú er verið að búa til heimildarmynd um einstaklinga fædda á eftirtöldum dögum á mismunandi stöðum í heiminum sem eiga ekkert annað sameiginlegt en að vera af sama kyni. Kalla þau þetta “Birthday twins project”. Markmiðið er að safna saman breiðum hópi af einstaklingum alls staðar að úr heiminum og reyna að svara spurningunni ”Hvernig væri líf mitt ef ég hefði fæðst í öðrum heimshluta?” Lesa meira
 
Flugeldar áramótin Höfn 2005-2006

Vel heppnuð áramót - 02.01.2008 Janúar

Áramótin fóru mjög vel fram í Ríki Vatnajökuls enda viðraði þokkalega á gamlárskvöld þrátt fyrir að veðurspáin hafi ekki verið með besta móti. Allar áætlanir um skemmtanir kvöldsins stóðust og kveikt var í brennunni á réttum tíma og stóð Björgunarfélagið fyrir glæsilegri flugeldasýningu á brennusvæðinu. Lítið varð vart við flugelda eða annað slíkt meðan áramótaskaup sjónvarpsins stóð yfir en um leið og því lauk byrjaði flugeldaskothríðin af fullum krafti eins og undanfarin ár með tilheyrandi hávaða og skrautlýsingu. Eftir vel heppnuð áramót og gott jólafrí færist lífið aftur í venjulegt horf, kennsla hefst hjá Grunnskólanum samkvæmt stundaskrá á föstudag og hjá Framhaldsskólanum föstudaginn kl.10. Þar verða töflur afhentar og í kjölfarið verður umsjónarfundur. Kennsla hefst þar svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn 7. janúar. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica