Desember
Vedramot
Vedramot
Veðramót

28.12.2007 Desember

Bíó í Sindrabæ eftir tveggja ára hlé

Eftir tveggja ára hlé á kvikmyndasýningum á Hornafirði verður myndin Veðramót sýnd í Sindrabæ í kvöld kl. 18:00 og 21:00. Myndin sem er eftir GUÐNÝJU HALLDÓRSDÓTTUR hlaut m.a. 11 tilnefningar til EDDUverðlauna í ár. Með aðahlutverk fara Hilmir Snær Guðnason og Tinna Hrafnsdóttir.
Í umsögn gagnrýnenda um myndina segir m.a.: "...sterkur og spennandi söguþráður heldur manni við efnið, frábær leikur, tónlist og myndgæði gera Veðramót eftirminnilega upplifun. Þetta er mynd sem allir verða að sjá! Besta Íslenska myndin síðan Með allt á hreinu" - S.G., Rás 2


"Vonandi eiga sem flestir eftir að njóta frábærrar myndar og úrvals afþreyingar. Eddan hefur fundið arinhillurnar sínar í ár. "- S.V., Morgunblaðið

Um framhald kvikmyndasýninga í Sindrabæ er óráðið en verið er að kanna kostnað við að breyta sýningarvél þannig að hægt sé að sýna textaðar myndir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica