Desember
Velavana_skip_023
Velavana_skip_023
Flutningaskipið Axel við Austurfjörur. Björn Lóðs og Björgunarskipið Ingibjörg eru við skipið.

21.12.2007 Desember

Að varpa ábyrgð yfir á hafnsögumann er merki um ábyrgðarleysi

Fréttatilkynning frá Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar

Hafnarstjórn Hornafjarðar sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu í dag, þar segir: ljósi umræðu í fjölmiðlun undanfarna daga um þær staðhæfingar skipstjóra Axels að hafnsögumaður hafi gefið honum ranga stefnu frá Hornafjarðarósi vill Hafnarstjórn benda á að öll gögn og upplýsingar um málið benda til þess að hafnsögumaður hafi veitt skipstjóra allar þær leiðbeiningar sem þurfti til að sigla Axel rétta leið frá Hornafjarðarósi. Auk þess blasti við skipstjóranum á siglingakortum að hann hafi villst af leið. Ennfremur er greinilegt að skipstjórinn hafi algjörlega gleymt að fylgjast með ljósum frá Hvanneyjarvita. Hafnarstjórn undirstrikar því að ábyrgðin er eingöngu og alfarið á herðum skipstjóra Axels.

Að varpa ábyrgð yfir á hafnsögumann þegar um vítavert gáleysi skipstjórans er að ræða er merki um ábyrgðarleysi.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica