Desember
Aðventustund 2007
Aðventustund 2007
Aðventustund 2007
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

14.12.2007 Desember

Aðventustund hjá Skaffellingafélaginu

Sunnudaginn 9. desember hélt Skaffellingafélagið sína árlegu aðventustund í Skaftfellingabúð. Aðsóknin var mjög góð, eitthvað yfir hundrað manns. Fyrst söng kór Skaffellingafélagsins en nýr stjórnandi hefur tekið við honum, Friðrik Vignir Stefánsson. Síðan söng Jóna Gísladóttir einsöng. Gunnþóra Gunnardóttir frá Hnappavöllum las upp úr ný útgefinni bók, Sótt fram sem Sigurður Björnsson frá Kvískerjum hefur ritað um sögu sýslunefndar Austur Skaftafellssýslu og Öræfin. Síðan var sungið og gengið í kringum jólatré við undirleik Kristins Kjartansson úr Mýrdal sem spilaði á harmóniku og kom skeggjaður náungi ofan úr fjöllunum í heimsókn.

Með þessu gæddu menn sér á kaffi og meðlæti sem kórinn lagði til. Þótt þessi samkoma takast með miklum ágætum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica