Fjölskyldudagur í Haukafelli
Það er orðin hefð fyrir því að Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu bjóði fólki að koma í skóginn í Haukafelli einn sunnudag í desember og að þessu sinni verður það sunnudaginn 16. desember frá kl. 11-16. Þá geta allir fellt sitt eigið jólatré. Þetta er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur að fá sér bíltúr í sveitina og njóta útivistar í skóginum. Allir eru velkomnir í Haukafell þar sem boðið er upp á kakó og kökur og oftast hafa jólasveinar úr Fláfjalli aðstoðað fólk við að velja sér jólatré og koma því í bílinn.
Í ár kaupa Kiwanismenn stafafuru og sitkagrenitré sem ræktuð eru í Haukafelli af Skógræktarfélaginu. Þannig að hægt er að styrkja starfsemi bæði Skógræktarfélagsins og Kiwanisklúbbsins með því að kaupa íslensk jólatré af Kiwanis á Höfn.




Skrifa athugasemd