Desember
Nesjaskóli
Nesjaskóli
Nesjaskóli
Mynd 2 af 2
1 2

11.12.2007 Desember

Guðjón Pétur átti hæsta tilboðið í Nesjaskóla 60,5 milljónir

Tvö tilboð bárust vegna Útboðs Ríkiskaupa á Nesjaskóla. Í dag voru tilboðin opnuð og var það Guðjón Pétur Jónsson athafnamaður sem átti hæsta tilboðið í fasteignirnar, hann bauð 60.5 milljónir. Fasteignamat eignanna er kr. 54.197.000,- og brunabótamat kr. 324.800.000. Ríkiskaup sá alfarið um útboð á fasteigninni fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar þ.e. frágang útboðs, auglýsingu og opnun tilboða. Það sem boðið var út voru samtals 2,429 fermetrar. Um er að ræða einbýlishúsið Sunnhvoll, heimavistarskólahúsnæðið, nýja og gamla, kennslustofur, mötuneyti, 4 íbúðir og geymslur. Rétt er að taka fram að það húsnæði þar sem kennsla fer fram á yngsta stigi Grunnskóla Hornafjarðar er ekki hluti af útboðinu.

Hægt er að skoða myndir af Nesjaskóla hér

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica