Hvað gerir Ríki Vatnajökuls fyrir þig
Í dag verður haldinn opinn fundur undir merkjum "Hvað gerir Ríki Vartnajökuls fyrir þig" Fundurinn er á vegum Ríki Vatnajökuls ehf., ferðaþjónustu-, matvæla- og menningarklasa Suðausturlands. Á dagskrá fundarins verður kynning á markaðáætlun fyrir árið 2008, ÚH 18 sem er verkefni á vegum Útflutningsráðs en það verður kynnt á fundinum og svo er það sem margir myndu segja að væri rúsínan í pylsuendanum, kynning á Ljósaverkefni Ríki Vatnajökuls. Fundurinn er öllum opin og að sögn Rósu Bjarkar Halldórsdóttur framkvæmdarstjóra Ríki Vatnajökuls hvetur hún alla sem hafa áhuga á markaðs og ferðamálum í Ríki Vatnajökuls að mæta á fundinn. Á fundinum verður farið í hugmyndavinnu og almenna umræðu.
Fundurinn hefst kl. 17:00 og er í fundarsal Nýheima.





Skrifa athugasemd